Faxi

Årgang

Faxi - 2022, Side 25

Faxi - 2022, Side 25
FAXI 25 Reykjanesbær Gleðileg jól Gott og farsælt nýtt ár! Þökkum samskiptin á liðnu ári. SUÐURNESJABÆR óskar starfsmönnum sínum og öllum bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum liðið ár. Í fyrsta tölublaði Faxa 2008 er grein eft- ir mig um fyrsta steinhúsið í Keflavík á verslunarlóð sem stækkuð var 1891 og leiddi til stofnunar nýs hrepps 1908. Til- efnið var húsbygging Arinbjarnar bakara við Hafnagötu en þar hóf hann bakstur og verslun sem hann rak til dánardægurs 1914. Pakkhús úr timbri reisti Arinbjörn neðan við bakaríið við fjöruna upp af lendingu þar á kambinum. Annað pakkhús úr steini lét hann hlaða um leið en ekki við sjóinn hjá timbur- pakkhúsinu eins og ég drap á í Faxa 2008. Þar benti ég á að steinpakkhús þetta væri fyrsta steinhús í Keflavík en gat þess um leið að óljóst væri hvar það hafi staðið. Ljósmynd af komu Sveins Björnssonar for- seta til Keflavíkur 1944 sýnir forseta með fylgdarliði ganga niður Hafnargötu framan við símstöðina og pósthúsið. Bakarí Arinbjarnar er í sömu götulínu. Milli sím- stöðvar og bakarísins er lágreist hús með vegg að götu og lágu risi er snýr suður og norður með gafla beggja megin eins og á torfbæ. Er húsið greinilega hlaðið úr steini en minnir fremur á geymsluskúr en stórt pakkhús. Stendur húsið steinsnar sunnan við sjálft bakaríið, um það bil á núverandi gatnamótum Ránargötu og Hafnargötu. Þegar Ránargatan var lögð 1945 var um- rætt steinhús rifið. Á Hafnargötu framan við húsið ganga fjórir lögregluþjónar í fylkingu forsetans eins og sést á ljósmynd sem Vigfús Sigurgeirsson tók. Lögreglu- þjónarnir eru á myndinni frá vinstri: Jón Þórarinsson, þá yfirlögregluþjónn, Böðvar Pálsson, Sigurður Brynjólfsson og loks Benedikt Þórarinsson. Hníga öll rök að því að lága steinhúsið ofan götunnar bak við bakaríið sé steinpakkhús Arinbjarnar sem ég gat um í Faxa 2008 og hafi verið rifið við lagningu Ránargötu sem liggur nú á milli Suðurgötu og Hafnargötu beint andspænis hinni nýju og stóru fánaborg í skrúðgarði Keflvíkinga. Skúli Magnússon Umrætt steinhús er til hægri á mynd, aftan við lögregluþjónana fjóra. Húsið var trúlega birgðageymsla fyrir bakarí Arinbjarnar. Myndin er fengin úr ævisögu Sveins Björnssonar, tekin af Vigfúsi Sigurgeirssyni Steinpakkhúsið við gamla bakaríið

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.