Faxi

Årgang

Faxi - 2022, Side 42

Faxi - 2022, Side 42
42 FAXI Guðrún Eyjólfsdóttir formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum kom að máli við mig nýverið og spurði hvort ég gæti rifjað upp aðdraganda að stofn- un félagsins og sett á blað. Eftir nokkra umhugsun ákvað ég að gera það og er útkoman sú sem hér fer á eftir. Ég held að það hafi verið í kringum1980, þegar ég var starfsmaður hjá Olíufélaginu Skeljungi í Keflavík að til mín kom á skrifstofuna Guðrún Sigurbergsdóttir eða Gunna skó eins og hún var kölluð. Hún var aðal drifkrafturinn að stofnun Styrktarfélags aldraðra á Suðurnesjum sem stofnað var í febrúar 1974. Guðrún var mikil kjarnakona og var sífellt að leita að afþreyingu fyrir eldri borgara. Þegar styrktarfélagið var stofnað var nánast ekkert gert fyrir aldrað fólk á Suðurnesjum. Ég held að það hafi verið einn dansleikur á ári sem Kvenfélagið stóð fyrir. Aldraður maður hafði arfleidd Keflavíkurbæ að íbúðarhúsi sínu við Faxa- braut og var það gert að elliheimili sem nefnt var Hlévangur. Ég held að þar hafi rúmast sjö eða átta manns. Þetta var allt og sumt sem gert var fyrir eldri borgara í Keflavík. Þau sem tóku þátt í stofnun þessa félags voru flest á miðjum aldri. Guðrún sagði mér að Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Dval- ar og hjúkrunarheimilisins Grundar hafi verið þeirra aðalleiðbeinandi við stofnun félagsins. Móðir mín vitjar Guðrúnar í draumi Vík ég nú að erindi Guðrúnar. Hún segir að sig hafi dreymt móður mína fyrir stuttu og hafi hún sagt við sig að hún skyldi fá Jón son sinn til að hjálpa sér við félagsmál aldraðra en móðir mín dó 1973. Þannig var mál með vexti að ég hafði farið inn í Kópavog í þrjá vetur og lært að binda bækur. Í framhald að því batt ég inn talsvert af bókum og tímaritum fyrir Bóka- safn Keflavíkur. Þetta hafði Guðrún frétt og var nú komin til að fá mig til að kenna öldruðum að binda bækur. Guðrún lét mig vita af því að allt sem gert var fyrir félagið væri sjálfboðavinna. Ég var tregur til en sagðist skyldi athuga málið. Ég vonaði að hún gleymdi þessu, en það var nú öðru nær. Hún kom með reglulegu millibili og ítrekaði sitt mál. Þetta endaði þannig að ég féllst á þetta. Keypt voru tæki og tól sem þurftu í þetta verkefni og kenndi ég öldruðum bókband í þrjá vetur í bílskúr sem var í litlu fjölbýlishúsi á horninu á Hringbraut og Vesturgötu í Keflavík. Þetta vakti mikla lukku og aðsókn var góð. Eitt leiddi af öðru, ég gekk í Styrktarfé- lagið og var fljótlega kominn í stjórn þess og endaði sem formaður. Formið ekki heppilegt til framtíðar Fljótlega eftir að ég var formaður fannst mér þetta form sem við vorum með ekki heppilegt til framtíðar. Flestir í stjórn og nefndum félagsins voru undir 60 ára aldri og í fullri vinnu. Ég fór því að tala fyrir því að stofnað yrði nýtt félag fyrir 60 ára og eldri. Til að byrja með mætti þessi hug- mynd svolítilli mótspyrnu en þegar frá leið var öll stjórnin þessu sammála. Tilgangur- inn með þessari breytingu var sá að virkja betur fólk á eftirlaunaaldri til starfsseminn- ar og sinna þannig eigin málum. Kosinn var undirbúningsnefnd. Auk mín í nefndinni voru Guðrún Sigurbergsdóttir, Soffía Magnúsdóttir, Jónína Kristjánsdóttir og var ég formaður nefndarinnar. Á haust- mánuðum 1990 fórum við að undirbúa stofnun hins nýja félags. Jón Tómasson fyrrv. símstöðvarstjóri í Félag eldri borgara 30 ára: Aðdragandinn að stofnun félagsins „Aðkoma mín að öldrunarmálum á Suðurnesjum er með nokkrum sérstökum hætti“ Guðrún Eyjólfsdóttir formaður Félags eldri borgara Jón Sæmundsson

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.