Faxi

Årgang

Faxi - 2022, Side 36

Faxi - 2022, Side 36
36 FAXI Ingvar Eyfjörð framkvæmdastjóri Aðal- torgs og Rósa Ingvarsdóttir fjármála- stjóri eru ekki bara stórhuga frændsystkini heldur fólk með öfluga framtíðarsýn. Það var ævintýralegt að sjá hótelið Courty- ard by Marriott, rísa á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar. Það var flutt til landsins í einingum og reist á mettíma við undrun þeirra sem á horfðu. Hótelið var hluti af öðrum fasa í miklum upp- byggingaáformum Aðaðtorgs en samtals eru fasarnir fimm. Svanhildur Eiríksdótt- ir settist niður með þeim til þess að skoða sérstaklega í hvaða fasa þau eru stödd nú og hvernig framtíðarsýn þeirra lítur út. „Hér var bara mói, en nú er hér mikil uppbygging“ Uppbygging Aðaltorgs ehf. hófst árið 2016 með kaupum á gistiheimilinu Alex. Rekstur hafði verið í húsinu frá árinu 2000, fyrst bílahús en síðan gistiheimili. Í húsinu er nú skrifstofu- og starfsmannaaðstaða en áformað er að heilsugæsla verði rekin í húsinu þar til henni verður fundin fram- tíðarstaður á öðru svæði Aðaltorgs, nær Reykjanesbraut. Ingvar lætur hugann reika nokkur ár aftur í tímann og rifjar upp hvernig umhorfs var á svæðinu þegar hann og Rósa hófu innreið Aðaltorgs þar. „Lengst af var þetta eina húsið hér, hafði risið vegna framsýni Ellerts Eiríkssonar þáverandi bæj- arstjóra sem vildi byggja upp þetta svæði og lét leggja skolplagnir hingað uppeftir. Flug- vellir voru ekki hér, bara mengaður mói.“ Í samstarfi við Reykjanesbæ og hugmynda- vinnu vegna deiliskipulags við Aðaltorg útvíkkaði Reykjanesbær þróunarsvæðið þar sem nú eru Flugvellir. „Núna erum við að horfa á þvílíkar byggingar, þvílíka starfsemi og störf að verða til. Masterplan Kadeco sem kynnt var nýverið ríma vel við Aðaltorg ehf. Fasteignaþróunarfélag í þjónustu samfélagsins Þetta er framtíðarsýn Aðaltorgs. Ljósm. Aðaltorg

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.