Faxi

Volume

Faxi - 2022, Page 29

Faxi - 2022, Page 29
FAXI 29 ég var rekinn úr MR ásamt vini mínum fyrir dólgslæti og almenn leiðindi. Ég er ADHD gaur og það getur brotist út á versta veg. Við þóttum bara óalandi og óferj- andi. Mér skilst að það sé eina skiptið sem Guðni kjaftur, sem þá var rektor MR hafi endurgreitt skólagjöld og hann útvegað okkur skólavist í öðrum skóla. Hann kom mér í Menntaskólann við Sund. Ég lærði náttúrufræði í báðum skólum. Mér gekk ekkert sérstaklega vel framan af að læra stærðfræði, efnafræði og eðlisfræði en það breyttist svo seinna. Ég lauk námi í tækni- háskóla sem leiddi mig síðan í tölvurnar. Var hjá Aco og síðar hjá Tæknivali. Var í tölvubransanum í 18 ár, lengst af sjálfstæð- ur.“ Bjarnfreðarson hvað! Eftir atburð í lífi Fritz fyrir um 25 árum síðan urðu þáttaskil í lífi hans, sem leiddu seinna til þess að hann innritaðist í guð- fræðideild Háskóla Íslands. „Ég fékk oft að fara á KFUM fund með Gústa bróður mínum. Um sjö ára aldurinn þá man ég að ég gekk út af fundi í KFUM heimilinu í Rof- abæ og var uppnuminn af Jesú. Bara gekk út með þennan gaur í hjartanu og hef átt trú síðan og sú trú hefur alltaf verið haldreipi mitt í lífinu allar götur síðan. Svo gerist það við ákveðin atburð í lífi mínu árið 1997 að ég hugaði með sjálfum mér, einu sinni ætlaðir þú að verða prestur. En ég ýtti þeirri hugsun til hliðar en þessi atburður varð til þess að ég fór að iðka trú, mæta í messur og samkomur og taka þátt í bænahringjum. Hugmyndin um að fara í guðfræði ágerðist og árið 2007 var svo komið að ég varð að gera eitthvað í þessum málum og ég skráði mig í háskólann og ætlaði að prófa guðfræði allavega einn kúrs. Ég er ennþá að læra guðfræði, er búinn með nokkrar gráður í guðfræði og öðrum fögum og get í gríni sagt, Bjarnfreðarson hvað! Með sínar 5 gráður og kennsluréttindi.“ Hliðarvegir lífsins En eins og gerist í lífi hvers hvers manns er gatan ekki alltaf bein og vegurinn breiður. Fritz Már hefur tekið nokkrar beygjurnar og hliðargöturnar og þekkir veruleika sem flestum er framandi af eigin raun. Varð trúin aldrei undir í þeim öldugangi? „Nei í raun ekki. En vissulega á ein- hverjum hliðarvegi lífsins átti ég til að gera samning við guð. Ef þú gerir þetta fyrir mig þá skal ég gera þetta og það merkilega var að Hann stóð alltaf við sitt en ég aldrei við mitt. Trúin hefur alltaf verið haldreipi mitt í lífinu. Ég ákvað fyrir tæpum 28 árum síðan að taka líf mitt í gegn og fór að vinna í mínum málum. Hætti allri óreglu og fór í meðferð. Það var góð ákvörðun. Eftir út- skrift úr guðfræðideild Háskóla Íslands þá kláraði ég eina auka mastersgráðu en ég var alltaf staðráðinn í að verða prestur. Ég fékk köllun til þess og það kom aldrei neitt ann- að til greina. Ég vígðist til prests í Noregi, í Dómkirkjunni í Niðarósi og það sem meira Séra Fritz í embættisverkum í Keflavíkurkirkju. Mynd úr einkasafni Fritz Fritz Már Jörgenson og Kristján Jóhannsson á spjalli í skrifstofu Fritz í Keflavíkurkirkju. Ljósm. Svanhildur Eiríksdóttir

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.