Faxi - 2022, Blaðsíða 39
FAXI 39
var Heilsugæslan Höfði sem gerði tilboð í
rekstur heilsugæslunnar til Sjúkratrygginga
Íslands. Reiknað er með að gengið verði frá
samningi á næstu dögum.
Græn svæði skipulögð
áður en byggt er
Þegar Ingvar og Rósa eru spurð um tíma-
línu í uppbyggingunni er fátt um svör. Þau
segjast vera mjög gætin og vilji því ekki
segja of mikið. „Við sögðu þó í upphafi árið
2016 að við ætluðum að fjárfesta fyrir 15
milljarða á 15 árum. Við erum nú komin
á sjöunda ár og eigum rúm átta eftir. Þar
af voru tafir í tvö ár vegna Covid, auk þess
þurftum við að taka við rekstri hótelsins
eftir að rekstraaðili hótelsins fór í þrot
fjórum mánuðum fyrir opnun.“ En þegar
talið berst að næstu fösum í uppbyggingar-
starfinu heyrist á máli þeirra að áformin
eru spennandi. „Við ætlum í frekari upp-
byggingu norðan við húsnæði okkar í næsta
fasa, þeim fjórða. Hugmynd fyrir það svæði
er að auka verslun og þjónustu enn frekar.
Við erum m.a. með hugmynd að lýðheilsu-
miðstöð og rými fyrir ýmsar stjórnsýslu- og
ríkisstofnanir. Við sjáum líka fyrir okkur
heilsuklasa sem rímar vel við heilsugæslu
en gæti auk þess tengst félagsþjónustu og
útlendingamálum. Þessar hugmyndir og
áætlanir eru enn í mótun en við erum að
vinna að deiliskipulagi svæðisins í sam-
vinnu við Reykjanesbæ og Kadeco.“
Inn í fjórða áfanga verður gert ráð fyrir
grænum svæðum sem tengjast munum
þeim útivistar- og náttúrusvæðum sem
fyrir eru. „Auðnin í móanum er það sem
ferðamanninum líkar við. Í aðalskipulaginu
og allri hönnun í dag er gert ráð fyrir að
þú hannir græn svæði áður en þú byrjar að
byggja og að þau séu komin inn í heildar-
skipulagið. Okkar áform eru að græða birki
upp úr heita vatninu frá hótelinu og leyfa
ferðalangnum og heimamönnum að koma
og gróðursetja og tengjast Rósaselsskóg
með íslenskum jurtum. Vonandi náum við
því að gera það frá okkur. Þá nær fólk að
jafna kolefnissporið sitt og vera hluti af
því hugarfari að vera meðvitaður og hugsa
um umhverfi sitt. Allt svona er auðvit-
að vandmeðfarið. Rósaselsvötn tilheyra
Suðurnesjabæ og eru í umsjón Skógræktar-
félags Suðurnesja. Konráð Lúðvíksson
félagsmaður og sá einstaklingur sem stýrði
uppbyggingu svæðisins var með okkur í
liði þegar við fórum að hugsa þetta og verið
okkur leiðbeinandi.“ Þau Ingvar og Rósa
nutu einnig aðstoðar og ráðgjafar Ásdísar
Ólafsdóttur, dóttir Rósu í því hvernig hægt
væri að byggja upp sjálfbæran skóg en hún
er líffræðingur að mennt.
Ef við lítum til enn lengri framtíðar, hvað
erum við að tala um í fimmta fasa?
„Eftir að búið verður að byggja hér upp þá
teljum við að kominn verði nægur segull og
kraftur til þess að geta starfrækt ferðaþjón-
ustu með áherslu á UNESCO út Reykjanes
jarðvanginn. Við viljum sjá að hérna verði
þannig dýnamík, að ef þú ætlar að fara á
Reykjanesið, verði þetta staðurinn til að
koma á, fara í dagsferðir eða lengri ferðir
um allt svæðið. Við höfum fengum þau
ummæli frá leigubílstjórum að þetta sé það
hótel sem er duglegt að senda í einkaleið-
sögn sem er virkilega ánægjulegt.
Til að byggja upp atvinnu m.a. ferða-
þjónustu þurfum við að standa saman á
Suðurnesjum og gera svæðið og þjónustuna
áhugaverða fyrir gesti okkur og íbúa. Sam-
eining sveitarfélaga á Suðurnesjum liggur
þar þyngst á vogarskálum,“ segja þau Ingvar
og Rósa. En nú er viðtalið komið út á hálan
ís svo látið verður staðar numið.
Við óskum öllum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær
Óskum
Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Þökkum árið
sem er að líða.
Sími 420 2500 www.skolamatur.is
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Hugsað til framtíðar! Hér gefur að líta áætlun Aðaltorgs um grænt svæði. Ljósm. Aðaltorg