Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 2
Frá ritstjórum
2 ..
við 23 lögreglumenn með starfsreynslu í dreifbýli. Í samnefndri grein rannsaka Ómar
Hjalti Sölvason, Markus Meckl og Þorlákur Jónsson væntingar Íslendinga og hug-
myndir innflytjenda um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. Rannsóknin sem
greint er frá er hluti rannsóknarverkefnisins „Samfélög án aðgreiningar?“ og byggir á
tvískiptri spurningalistakönnun með mikla svörun meðal innflytjenda. Rannsóknin er
mjög athyglisverð, ekki síst í ljósi fjölgunar innflytjenda hérlendis undanfarin ár.
Kristín Björnsdóttur og Ásta Jóhannsdóttir skoða áhrif hamfara á líf og aðstæður
fatlaðs fólks og greina viðbragðsáætlanir almannavarna og leiðbeiningar í hamförum
með tilliti til aðstæðna fatlaðs fólks í greininni „Fatlað fólk í hamförum“. Um er að
ræða fyrstu íslensku fræðigreinina þar sem fjallað er um fatlað fólk og hamfarir. Loks
birtist í tímaritinu grein eftir Má Wolfgang Mixa, Kristínu Loftsdóttur og Önnu Lísu
Rúnarsdóttur sem ber titilinn „‚Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst‘: Tvísýnleiki
og upplifun leigjenda af íslenskum húsnæðismarkaði“. Við greininguna er teflt saman
tölfræðiupplýsingum um umfang og ástand leigumarkaðarins, sem og reynslusögum
leigjenda sem safnað var með viðtölum árið 2020. Greinin talar beint inn í erfitt ástand
á húsnæðismarkaði.
Íslenska þjóðfélagið stendur styrkum fótum og framtíð þess er björt. Tímaritið hefur
verið gefið út frá árinu 2010 og hafa að jafnaði 6,5 greinar birst í tímaritinu í hverjum
árgangi. Fyrir dyrum stendur að uppfæra vefsíðu tímaritsins og færa tímaritið sjálft í
nútímalegra horf. Þá stendur til að gera tímaritinu hærra undir höfði og auka sýnileika
þess, svo sem með málþingum í tengslum við birtar greinar. Liður í þessu er að Félags-
fræðidagurinn í upphafi árs 2022 verður tileinkaður Íslenska þjóðfélaginu.
Ritstjórar hvetja lesendur til að fylgjast með uppfærðu tímariti og halda áfram að
senda inn handrit.
Ritstjórar Íslenska þjóðfélagsins,
Guðmundur Oddsson og Margrét Valdimarsdóttir.