Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Síða 9

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Síða 9
Hjördís Sigursteinsdóttir og Kristín Helgadóttir 9 .. Gögn og aðferðir Í þessari rannsókn var notast við blandað rannsóknarsnið (e. mixed research methods); fyrirliggjandi gögn, spurningalistakönnun og einstaklingsviðtöl, til þess að svara eftirfarandi rannsóknarspurn- ingum: (1) Hvert er hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja á Akureyri á árunum 2011–2017? (2) Hefur konum í stjórn fyrirtækja á Akureyri fjölgað eða fækkað meira á árunum 2011–2017 miðað við almennt á Íslandi? (3) Hver eru viðhorf stjórnarmanna fyrirtækja á Akureyri til kynjakvóta og upplifun þeirra af honum? Ákveðið var að notast við blandað rannsóknarsnið, sem er aðferðafræðileg nálgun við rannsóknir sem felur í sér að safna, greina og samþætta með því að nota bæði megindleg og eigindleg gögn. Megindleg gögn byggja á upplýsingum sem hægt er að mæla og skrá og hægt er að safna á þægi- legan hátt með spurningalista eða með því að nota tölulegar upplýsingar. Eigindleg gögn byggja á upplýsingum sem safnað er með viðtölum, rýnihópum eða athugunum. Ávinningurinn af því að nota bæði megindlegar og eigindlegar rannsóknir og gögn er sá að með því má öðlast betri og dýpri skiln- ing á því sem verið er að skoða og vega upp á móti þeim veikleika sem felst í því að nota einungis aðra aðferðina (Johnson og Onwuegbuzie, 2004). Fyrirliggjandi gögn Upplýsingar fengust hjá fyrirtækinu Creditinfo um öll skráð fyrirtæki á Akureyri árin 2011–2017. Heildarlistinn innihélt upplýsingar um 718 fyrirtæki, nöfn þeirra, hlutfall kvenna í stjórnum, ISAT- númer (Íslensk atvinnugreinaflokkun) og skýringu þeirra og upplýsingar um fjölda starfsmanna hjá sumum þeirra. Af þessum 718 fyrirtækjum voru aðeins 155 (22%) með skráðar upplýsingar um starfsmannafjölda, þar af 17 fyrirtæki með 50 starfsmenn skráða eða fleiri. Þessum gögnum var ætlað að svara fyrstu tveimur rannsóknarspurningunum, um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja á Akureyri og hvort þeim hefði fjölgað eða fækkað meira miðað við almennt á Íslandi. Niðurstöðurnar eru settar fram sem hlutfallstölur og fjöldi í töflu. Spurningalistakönnun Spurningalistinn sem notaður var í rannsókninni samanstendur að mestu af stöðluðum spurningum sem notaðar hafa verið áður í rannsóknum á kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Einkum var horft til rannsóknar Auðar Örnu Arnardóttur og Þrastar Olafs Sigurjónssonar (2015) um val á stjórnar- mönnum á tímum kynjakvóta og rannsóknar Guðbjargar L. Rafnsdóttur, Laufeyjar Axelsdóttur, Sunnu Diðriksdóttur og Þorgerðar Einarsdóttur (2015) um konur og karla í forystu atvinnulífs á Íslandi. Spurningalistinn, sem var saminn með markmið rannsóknarinnar að leiðarljósi, var forpróf- aður á fimm einstaklingum sem allir eru stjórnendur í íslensku atvinnulífi. Í þessari grein er fjallað um niðurstöður spurninga um hvort og þá hvað hindri konur í að komast í stjórnir fyrirtækja, mikil- vægi þess að hafa konur í stjórnum og viðhorf til kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Þátttakendur í spurningalista¬könnuninni voru framkvæmda¬stjórar og stjórnarfólk 56 fyrirtækja á Akureyri. Þessi 56 fyrirtæki voru valin af lista hjá Creditinfo. Creditinfo gefur út lista yfir framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi og var notast við þann lista fyrir árið 2016. Alls voru 36 fyrirtæki á Akureyri á þeim lista árið 2016, og til viðbótar þeim voru valin til þátttöku í rannsókninni 20 stærstu fyrirtæki á Akureyri sem ekki voru á listanum. Spurningalistakönnunin var framkvæmd þannig að sendur var tölvupóstur til framkvæmdastjóra þessara 56 fyrirtækja með opinni krækju inn á könnunina og beiðni um að svara henni ásamt því að áframsenda hana á allt stjórnarfólk fyrirtækisins með beiðni um þátttöku í rannsókninni. Könnunin var opin svarendum frá 28. apríl 2017 – 29. maí 2017. Eftir tvær ítrekanir fengust svör frá 47 framkvæmdastjórum eða stjórnarmönnum; 41 karli og 6 konum. Þátttakendum var frjálst að sleppa að svara spurningum og því er fjöldi svara mismunandi eftir spurningum. Niður- stöður greininga eru settar fram sem lýsandi tölfræði, hlutfallstölur og fjöldi. Vegna þess hversu fáar konur svöruðu spurningalistanum var ekki reiknaður marktækur munur á svörum eftir því hvort um
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.