Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 11

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 11
Hjördís Sigursteinsdóttir og Kristín Helgadóttir 11 .. Viðhorf stjórnarmanna til kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja Tafla 2 sýnir viðhorf til kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja. Almennt séð tóku svarendur spurninga- listakönnunarinnar ekki afstöðu með eða á móti kynjakvótanum en tæp 43% þeirra merktu við „hlut- laus“. Af þeim sem þó tóku afstöðu voru flestir jákvæðir gagnvart kynjakvótanum en þriðjungur svarenda var með neikvætt eða mjög neikvætt viðhorf til hans. Engin kona merkti við að hafa nei- kvætt eða mjög neikvætt viðhorf til kynjakvóta í stjórnun fyrirtækja. Tafla 2. Hvert er viðhorf þitt til kynjakvóta í stjórnun fyrirtækja? Mjög neikvætt % (n) Neikvætt % (n) Hlutlaust, breytir engu % (n) Jákvætt % (n) Mjög jákvætt % (n) Allir 4,3% (2) 14,9% (7) 42,6% (20) 27,7% (13) 10,6% (5) Konur - - 16,7% (1) 16,7% (1) 66,7% (4) Karlar 4,9% (2) 17,1% (7) 46,3% (19) 29,3% (13) 2,4% (1) Tafla 3 sýnir niðurstöður fyrir spurninguna: Hefur kynbundin samsetning stjórnar einhver áhrif á störf stjórnarinnar? Hlutfallslega flestir svarendur spurningalista-könnunarinnar töldu að kynbundin samsetning stjórna hefði engin áhrif á störf stjórnarinnar eða tæp 45%, auk þess sem fjórðungur hafði ekki skoðun á því. Fjórar af sex konum töldu að kynbundin samsetning stjórnar hefði jákvæð áhrif á störf stjórnarinnar en aðeins fjórðungur karla. Hins vegar voru hlutfallslega flestir karlar (49%) á því að kynbundin samsetning stjórnar hefði engin áhrif á störf hennar en aðeins ein kona var á þeirri skoðun. Tafla 3. Hefur kynbundinn samsetning stjórnar einhver áhrif á störf stjórnarinnar? Já, jákvæð áhrif % (n) Já, neikvæð áhrif % (n) Nei, engin áhrif % (n) Hef ekki skoðun á því % (n) Allir 29,8% (14) 2,1% (1) 44,7% (21) 23,4% (11) Konur 66,6% (4) - 16,7% (1) 16,7% (1) Karlar 24,4% (10) 2,4% (1) 48,8% (20) 24,4% (10) Tafla 4 sýnir niðurstöður fyrir það að hvaða marki svarendur í spurningakönnuninni voru mjög eða frekar sammála sex fullyrðingum varðandi mikilvægi þess að hafa sem jafnast hlutfall karla og kvenna í stjórnum fyrirtækja. Bæði konur og karlar voru mjög eða frekar sammála því að það að hafa sem jafnast hlutfall karla og kvenna í stjórnum fyrirtækja sé mikilvægt af því að konur séu jafnhæfar körlum til að gegna stjórnunarstöðum. Einnig voru allar konur sammála því að það hvetji konur til að sækjast eftir starfsframa og um 65% karla voru einnig sammála þeirri fullyrðingu. Hins vegar töldu aðeins 30% karla að það hefði áhrif á rekstur fyrirtækja og tæpt 41% að þannig nýttist auður samfélagsins best á meðan allar konur töldu að þannig nýttist auður samfélagsins best og allar nema ein töldu að það hefði áhrif á rekstur fyrirtækja.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.