Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Side 13
Hjördís Sigursteinsdóttir og Kristín Helgadóttir
13 ..
ég er í stjórn og ég er að vinna með stjórnum þar sem ég er framkvæmdastjóri
þar sem eru jöfn kynjahlutföll og í framkvæmdastjórn hjá okkur eru jöfn kynja-
hlutföll, og ég er ekki að vinna með neinni konu sem þarf sérstaka löggjöf til að
vera valin til þeirra starfa sem hún sinnir.
Einn karlkyns viðmælandi taldi að lögin um kynjakvóta hefðu verið nauðsynleg en taldi þó að það
væri ekkert sem segði að blönduð stjórn væri betri en einsleit. Að hans mati á kynjakvótinn rétt á sér
í einhvern tíma en í framtíðinni ætti að ráða fólk inn eftir hæfni frekar en kyni. Hann sagði:
þetta gerir það kannski erfiðara stundum að manna stjórnir. Eins og ég segi, sér-
staklega svona úti á landi þar sem þú ert bara með minna af fólki sem hefur réttu
þekkinguna sko og eftir því sem þú týnir fleiri þætti, kynferði og eitthvað, þá er
það alltaf að minnka mengið.
Annar kvenkyns viðmælandi sagði að fyrst þegar hún heyrði af því að Noregur væri að innleiða
kynjakvóta í stjórnir hefði hún talið að sú aðgerð væri lítillækkun fyrir konur en sá svo þegar leið á
að þörf var á því að setja lög um kynjakvóta í stjórnum. Hún sagði:
ég held að það þurfi stundum svolítið svona massívar aðgerðir til þess að ein-
hvern veginn bara breyta venjunum og eftir það, eftir kannski, þetta er ekki
komið núna, eftir kannski fimm ár í viðbót verður þetta algjörlega sjálfsagt. Þá
dettur engum í hug að skipa stjórn sem er bara einsleit.
Almennt séð töldu allir karlkyns viðmælendur engar hindranir í vegi kvenna í dag á leið þeirra til
stjórnunarstarfa og kynjakvótinn væri því óþarfur. Þær sem hefðu áhuga á að komast eitthvað gætu
það ef þær vildu. Einn karl benti á að viðskiptalífið hefði verið mjög karllægt hér áður fyrr en það
væri ekki staðan í dag. Annar benti á að konur þyrftu að vera opnari og framfærnari og viljugri til að
taka að sér fleiri verkefni. Kvenkyns viðmælendur voru þó ekki sammála körlunum og töldu að það
væri erfitt fyrir margar konur að komast í stjórnir fyrirtækja þrátt fyrir góða menntun og hæfileika.
Ein kona benti á að þær fáu konur sem komast í stjórnir fyrirtækja væru oftar en ekki konur sem
væru mjög kaldar í framkomu, öruggar með sig, áhættusæknar og vel tengdar. Önnur taldi að það
þyrfti líka að breyta hugarfari kvenna og að álag heima fyrir, fjölskylduábyrgð og eigin samviska
væru helstu hindranir þeirra gagnvart því að taka að sér aukna ábyrgð og stjórnarsetu í fyrirtækjum.
Allir kvenkyns viðmælendur nema einn töldu mikilvægt að hafa fleiri en eina konu í stjórn fyrir-
tækja þar sem það að vera eina konan í stjórn gæti verið erfitt. Kona sem er ein spyrji síður erfiðra
spurninga þar sem konan sé þá stimpluð sem „þessi með vesenið og þessi sem sé alltaf með eitthvert
tuð.“ Ein konan sagði að hennar upplifun væri að ein kona áorkaði ofboðslega litlu. Hún sagði jafn-
framt: „við gerum ekkert nema að við séum fleiri. Og þá erum við svona aðeins að ræða saman fyrir
fundinn, ákveða og svona ráðfæra okkur við hverja aðra og leita stuðnings.“ Þær voru flestar sam-
mála því að konur nálguðust málin öðruvísi, þær tækju hlutina meira alvarlega og hefðu þörf fyrir
að ræða málin og fá allar upplýsingar áður en þær til dæmis taka ákvarðanir. Karlkyns viðmælendur
voru ekki á sama máli og töldu að það skipti ekki máli hvort það væri ein kona eða fleiri í stjórn.
Einn sagði: „öflugur einstaklingur af hvoru kyni sem er hafi alltaf sitt að segja í stjórninni hvernig
sem samsetning stjórnarinnar sé.“ Annar sagði: „margar konur eru bara eldbeittar og ekkert að gefa
sig, sama hver er fyrir framan þær. En spurningin er, af hverju eru þær ekki fleiri í þessum hóp?“
Upplifun stjórnarmanna á kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja
Í töflu 6 má sjá að í langflestum tilvikum, eða í 67% þeirra, töldu svarendur spurningalistakönnunarinnar
að lagasetningin um kynjakvóta hefði ekki breytt neinu eða höfðu ekki skoðun á því. Þó má sjá að að-
eins 8,5% svarenda töldu áhrifin af kynjakvótanum hafa verið slæm, allt karlar. Einnig má sjá að fjórar
af sex konum töldu að áhrifin af kynjakvótanum hefðu verið mjög góð en enginn karl svaraði því til.