Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Side 20
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 12. árgangur 2021, 20–33
© höfundar 2021. Tengiliður: Andrea Hjálmsdóttir, andrea@unak.is
Vefbirting 23. apríl 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Mæður á þriðju vaktinni í kórónaveirufaraldrinum
Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri
Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Útdráttur: Ljóst er að kórónaveirufaraldurinn sem herjað hefur á
heimsbyggðina frá því í ársbyrjun 2020 hefur haft ófyrirsjáanleg og marg-
þætt samfélagsleg áhrif. Barnafjölskyldur eru þar ekki undanskildar, en
á tímum harðari samkomutakmarkana en flestir hafa upplifað í samtím-
anum hefur líf barna og foreldra þeirra raskast mikið. Í þessari grein er
sjónum sérstaklega beint að upplifun mæðra í gagnkynja parasamböndum
og hvernig þær sinntu tilfinningavinnu og hugrænni byrði í daglegu lífi
í kjölfar hertra samkomutakmarkana í fyrstu bylgju faraldursins. Rann-
sóknin byggir á persónulegum, opnum dagbókarfærslum tæplega fjörutíu
mæðra yfir tveggja vikna tímabil í mars og apríl vorið 2020. Niðurstöður
rannsóknarinnar eru kynntar undir tveimur meginþemum. Fyrra þemað
varpar ljósi á birtingarmyndir tilfinningavinnunnar sem mæðurnar lýstu
endurtekið í hugleiðingum sínum. Seinna þemað endurspeglar þá miklu
hugrænu byrði sem þær upplifðu, sem kristallaðist meðal annars í ábyrgð
þeirra á að skipuleggja og verkstýra verkefnum heima fyrir. Því fylgdi
mikið álag, enda þurftu þær að endurskipuleggja veruleika sinn og taka
ákvarðanir sem þær höfðu ekki staðið frammi fyrir að taka áður.
Lykilorð: Verkaskipting kynjanna – Tilfinningavinna – Hugræn byrði
– Kórónaveirufaraldurinn
Abstract: The paper explores the gendered realities of work-life bal-
ance in Iceland during the Covid-19 pandemic, in particular how these
societal changes reflect and affect the gendered division of unpaid labour,
such as childcare, household chores, and mental load. The study draws on
written, open ended real-time diary entries, collected daily for two weeks
during the peak of the first wave of the pandemic, in March and April
2020. The entries represent the voices of 37 mothers in heterosexual re-
lationships. The findings show how burdened the mothers were in their
everyday life during the first wave of the pandemic, juggling time between
work and childcare. Their words reflected a reality in which they shoul-
dered more of the housework and childcare than their partners and took
on intense emotional labour as they tried to keep everyone calm and safe.
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni