Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 20

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 20
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 12. árgangur 2021, 20–33 © höfundar 2021. Tengiliður: Andrea Hjálmsdóttir, andrea@unak.is Vefbirting 23. apríl 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík Mæður á þriðju vaktinni í kórónaveirufaraldrinum Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri Valgerður S. Bjarnadóttir, nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Útdráttur: Ljóst er að kórónaveirufaraldurinn sem herjað hefur á heimsbyggðina frá því í ársbyrjun 2020 hefur haft ófyrirsjáanleg og marg- þætt samfélagsleg áhrif. Barnafjölskyldur eru þar ekki undanskildar, en á tímum harðari samkomutakmarkana en flestir hafa upplifað í samtím- anum hefur líf barna og foreldra þeirra raskast mikið. Í þessari grein er sjónum sérstaklega beint að upplifun mæðra í gagnkynja parasamböndum og hvernig þær sinntu tilfinningavinnu og hugrænni byrði í daglegu lífi í kjölfar hertra samkomutakmarkana í fyrstu bylgju faraldursins. Rann- sóknin byggir á persónulegum, opnum dagbókarfærslum tæplega fjörutíu mæðra yfir tveggja vikna tímabil í mars og apríl vorið 2020. Niðurstöður rannsóknarinnar eru kynntar undir tveimur meginþemum. Fyrra þemað varpar ljósi á birtingarmyndir tilfinningavinnunnar sem mæðurnar lýstu endurtekið í hugleiðingum sínum. Seinna þemað endurspeglar þá miklu hugrænu byrði sem þær upplifðu, sem kristallaðist meðal annars í ábyrgð þeirra á að skipuleggja og verkstýra verkefnum heima fyrir. Því fylgdi mikið álag, enda þurftu þær að endurskipuleggja veruleika sinn og taka ákvarðanir sem þær höfðu ekki staðið frammi fyrir að taka áður. Lykilorð: Verkaskipting kynjanna – Tilfinningavinna – Hugræn byrði – Kórónaveirufaraldurinn Abstract: The paper explores the gendered realities of work-life bal- ance in Iceland during the Covid-19 pandemic, in particular how these societal changes reflect and affect the gendered division of unpaid labour, such as childcare, household chores, and mental load. The study draws on written, open ended real-time diary entries, collected daily for two weeks during the peak of the first wave of the pandemic, in March and April 2020. The entries represent the voices of 37 mothers in heterosexual re- lationships. The findings show how burdened the mothers were in their everyday life during the first wave of the pandemic, juggling time between work and childcare. Their words reflected a reality in which they shoul- dered more of the housework and childcare than their partners and took on intense emotional labour as they tried to keep everyone calm and safe. ÍSLENSKA ÞJÓÐFÉLAGIÐ tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.