Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 36

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 36
Mannekla lögreglu og mjúk löggæsla í dreifbýli 36 .. við samfélagið krefst þess jafnframt að viðkomandi lögreglumenn skilji menningu byggðarlagsins og taki að sér leiðtogahlutverk. Áskoranirnar koma einnig að stórum hluta til vegna nálægðar við íbúana og þess að mörg viðfangsefna dreifbýlislögreglumanna flokkast ekki til hefðbundinnar lög- gæslu. Því er nauðsynlegt að viðkomandi hafi djúpan skilning á sérstökum kröfum dreifbýlislög- gæslu (Fenwick o.fl., 2012; Ruddell og Jones, 2020; Wooff, 2017). Dreifbýli er hins vegar fjölbreytilegt innan og milli landa (Cordner, 2011). Í ljósi þessa er mikil- vægt að hafa í huga að flestar rannsóknir á dreifbýlislöggæslu byggja á reynslu Ástrala, Bandaríkja- manna og Breta (Ceccato og Dolmen, 2011). Þessi þjóðfélög eru fjölmenn og fjölbreytt ójafnaðar- samfélög með tiltölulega gisin velferðarkerfi. Þörf er á rannsóknum frá annars konar þjóðfélögum, s.s. Norðurlöndunum, sem eru í samanburði einsleit jafnaðarsamfélög með þéttriðin velferðarkerfi (Esping-Andersen, 1990). Í tilfelli Norðurlandanna ýta jöfnuður og félagsleg samþætting – stofn- anabundin með öflugu velferðarkerfi – undir traust til lögreglunnar og stuðla þar með að mjúkri löggæslu, sem löngum hefur einkennt norræn lögreglulið (Balvig og Holmberg, 2005; Høigard, 2011). Í alþjóðlegum samanburði ríkir mest traust til lögreglunnar á Norðurlöndunum (Kääriäinen, 2016; Tómas Bjarnason, 2014) og norræn réttarvörslukerfi, þ.m.t. löggæsla, þykja mannúðlegri en víðast annars staðar (Pratt og Eriksson, 2013; Ugelvik, 2016). Norrænum rannsóknum á lögreglunni hefur fjölgað sl. 15–20 ár (Høigard, 2011), en rannsóknir á dreifbýlislöggæslu hafa setið á hakanum (sjá þó Lindström, 2015; Rantatalo o.fl., 2020). Íslenskum rannsóknum hefur fjölgað samhliða (t.d. Finnborg Salóme Steinþórsdóttir og Gyða Margrét Pétursdóttir, 2018; Guðmundur Oddsson o.fl., 2020; Ólafur Örn Bragason, 2006). Markmið þessarar rannsóknar er að kortleggja þróun mannafla íslensku lögreglunnar frá árinu 2007, skoða lögregluna í evrópskum samanburði og greina upplifun dreifbýlislögreglumanna af helstu áskorunum þeirra og bjargráðum. Notast er við fyrirliggjandi gögn og viðtöl við 23 lögreglu- menn með starfsreynslu í dreifbýli. Spurt er: Hver er staða íslensku lögreglunnar á alþjóðavísu er kemur að mönnun? Hvað upplifa dreifbýlislögreglumenn sem helstu áskoranir sínar og bjargráð? Næsti kafli fjallar um þróun mannafla íslensku lögreglunnar í ljósi almennrar þjóðfélagsþróunar og evrópsks samanburðar. Einnig er fjallað um mikilvægi dreifbýlislöggæslu fyrir íslenskt sam- félag. Kaflinn á eftir fjallar um viðtalsgögnin og -aðferðir og loks verða niðurstöður viðtalsrann- sóknarinnar reifaðar. Íslenska lögreglan: Staða, þróun og evrópskur samanburður Vestræn þjóðfélög umbreyttust á 19. og 20. öld úr strjálbýlum landbúnaðarsamfélögum í þéttbýl (síð)iðnaðar- og þjónustusamfélög. Iðn- og þéttbýlisvæðing og síðar ör markaðs- og hnattvæðing hafa aukið hraða og flækjustig samfélaga og gert lögreglustarfið erfiðara (Bayley, 2016). Þróunin hefur kallað á breytingar á skipulagi lögreglu. Kröfur um hagræðingu, skilvirkni og sérhæfingu hafa t.d. leitt til aukinnar miðstýringar. Á Norðurlöndunum hefur t.d. lögregluumdæmum verið fækkað og hlutverk ríkislögreglustjóra sem yfirmanns lögreglu styrkt (Greiningardeild ríkislögreglustjóra, 2019; Lindström, 2015). Tilgangur miðstýringar er að bæta árangur og skilvirkni. Fækkun og stækkun lögregluumdæma á jafnframt að samhæfa þau með því að gera þau líkari innbyrðis (Ríkislögreglustjóri, 2019). Fræði- menn segja þó að aukin miðstýring bitni á dreifbýlislöggæslu, s.s. með lokun smærri stöðva og minni sýnileika lögreglu í fámennari byggðarlögum (Lindström, 2015; Yarwood og Mawby, 2011). Þetta hefur torveldað störf dreifbýlislögreglunnar, sem hefur jafnan fáa lögreglumenn miðað við höfðatölu og ferkílómetra og hærra hlutfall afleysingafólks en þéttbýlislögreglan. Þá er hætta á að mýkra yfirbragð dreifbýlislöggæslu herðist með aukinni miðstýringu (Smith og Somerville, 2013), en dreifbýli býður alla jafna upp á betri aðstæður fyrir mjúka löggæslu en borgir og stærra þéttbýli í ljósi fámennisins, nálægðarinnar og mikils trausts manna á milli (Wooff, 2017).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.