Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 41
Guðmundur Oddsson og Andrew Paul Hill
41 ..
og hlutverkaálagið (e. role strain) sem má rekja, að hluta, til misræmis milli væntinga viðkomandi
til lögreglustarfsins og raunveruleika dreifbýlislögreglumannsins. Misræmið felst m.a. í því að dreif-
býlislögreglumenn þurfa oft að leysa verkefni sem snúa ekki beint að því að framfylgja lögunum.
Þá langar oft frekar, líkt og flesta lögreglumenn, til þess að sinna hefðbundnari löggæsluverkefnum.
Þetta hlutverkaálag getur leitt til gremju (Huey og Ricciardelli, 2015).
Það sem er sérstaklega krefjandi við að vera einn á vakt, sögðu viðmælendur, er að fara í erfið
útköll, jafnvel hættuleg, þegar langt er í aðstoð. Þetta er einn helsti streituvaldur lögreglustarfsins
(Ricciardelli, 2018). Það er sérstaklega við erfið útköll sem þessi að lögreglumenn þurfa að lesa í
aðstæður og bregðast við á viðeigandi hátt: „Ég segi alltaf að það er betra að stíga varlega til jarðar
en skrefinu of langt. Því ef maður stígur skrefinu of langt, er ekki víst að þú getir tekið skrefið til
baka“ (Birgir).
Dreifbýlislögreglumenn þurfa að ígrunda vel hvernig á að nálgast erfiðar aðstæður og oftast er
skynsamlegast að fara varlega, lægja öldurnar með samræðum og bíða eftir aðstoð. Biðin er hins
vegar hvorki auðveld né oft valkostur þegar mikið liggur við. Því þurfa dreifbýlislögreglumenn
stundum að bíta á jaxlinn og takast einir á við mótaðila við ótryggar aðstæður. Það er á stundum sem
þessum sem viðmælendurnir sögðust helst óttast um öryggi sitt og annarra. Þeir sögðust vissulega
oftast fá aðstoð annarra lögreglumanna við alvarlegar aðstæður en oft væri langt í aðstoð.
„[S]íðan þegar að vaktinni lýkur, þá fer ég á bakvakt. Þá er maður í rauninni ennþá á vakt, maður
er ekkert að slaka á, því maður er alltaf að bíða eftir kallinu“ (Ásmundur). Hér lýsir Ásmundur upp-
lifun margra viðmælenda sem finnst þeir í raun aldrei vera á „frívakt“, sem er einnig algengt við-
kvæði dreifbýlislögreglumanna erlendis (t.d. Fenwick, 2015). Auk þess að vinna oftast vaktavinnu
og mikla yfirvinnu og vera „alltaf“ á bakvakt sögðust margir viðmælendur oft vera með samviskubit
yfir því að vera ekki í vinnunni vitandi hversu krefjandi hún er. Vegna þessa koma dreifbýlislög-
reglumenn á frívakt oft við á lögreglustöðinni og reyna að vera í kallfæri, s.s. með því að fara ekki
langt frá stöðinni í fríum. Þetta fyrirkomulag er hins vegar lýjandi, eins og Pétur lýsir:
Þegar ég starfaði [í ónefndu lögregluumdæmi] þá var þetta bara bilun. Þegar við
vorum á bakvakt þá var það skýrt þannig að við værum bara á bakvakt, sko en
ekki í vinnunni. Þannig að við værum tæknilega séð í fríi, en það var eiginlega
aldrei. Í dag þá er þetta að breytast en samt bara í stærri samfélögum. Þeir geta
tekið hvíldartímann en kannski ekki þeir sem starfa í minni samfélögum. Menn
poppuðu bara og margir fóru illa út úr þessu og margir bara brunnu út . . . Þetta
er bara ofurálag . . . (Pétur).
Einn streituvaldurinn við að vera „alltaf á vakt“ er óskýr mörk vinnu og einkalífs, þ.e. stöðug eftir-
spurn og sýnileiki dreifbýlislögreglumanna (Oliver og Meier, 2004). Viðmælendur töluðu, sem
dæmi, um að nærsamfélagið sæi þá fyrst og síðast sem lögreglumenn. Þeir segjast fá símtöl í einka-
síma og skilaboð á samfélagsmiðlum um vinnutengd málefni þegar þeir eru ekki í vinnu eða jafnvel
í sumarfríi. Þá kemur fólk reglulega að máli við þá um lögreglumál í kjörbúðinni og sundlauginni
og kemur jafnvel heim til þeirra. Sumir viðmælendur gerðu breytingar á lífsstíl sínum til að minnka
áreitið.
Og ég var bara lögreglumaður allan sólarhringinn, maður datt mjög fljótt í þann
gírinn að maður var bara lögreglumaður alltaf. Og ef að þú fórst í veislu eða bara
eitthvað, þá kom bara fólk til manns og fór beint að ræða hluti við þig bara eins
og þú værir í búningi. Þetta krafðist ákveðinna hluta af manni – maður auðvitað
þurfti alltaf að vera ákveðin fyrirmynd. Og ég fann mjög mikinn mun á þessu
þegar ég [vann] í Reykjavík, að bara um leið og þú stimplaðir þig út að þá varstu
bara almennur borgari (Orri).
Orri lýsir hvernig dreifbýlislögreglumenn eru ávallt undir smásjá nærsamfélagsins og þurfa að vera