Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Qupperneq 43
Guðmundur Oddsson og Andrew Paul Hill
43 ..
fyrir manneklu með því að hugsa út fyrir „lögreglukassann“ og nota hugvitssemi til að virkja félags-
auð nærsamfélagsins og snúa óhagstæðum aðstæðum sér í hag.
Í ljósi manneklu og skorts á aðstoð töluðu viðmælendur um að fá hjálp almennings við verkefni
sem aðrir lögreglumenn myndu sinna í þéttbýli. Dæmi um þetta er að fá viðstadda til að stjórna
umferð á vettvangi umferðarslysa; fá aðstoð nærstaddra við að ná stjórn á óstýrilátum gestum á
skemmtistöðum; fá hjálp frá öðrum fagaðilum og byggja upp traust samskipti innan stofnana sem
skarast við réttarvörslukerfið, s.s. við björgunarsveitarfólk og hjúkrunarfræðinga. Mikilvægast er þó,
að mati viðmælenda, að byggja upp góð samskipti við nærsamfélagið svo fólk treysti viðkomandi
lögreglumanni og vilji hjálpa. Það getur t.a.m. tekið aðkomumenn langan tíma að ávinna sér traust
og öðlast viðurkenningu í fámennum og samheldnum samfélögum (Þóroddur Bjarnason, 2018). Það
er þó til mikils að vinna og dreifbýlislögreglumenn læra fljótt að meta félagsauð nærsamfélagsins og
notfæra sér hann. Það felst nefnilega heilmikið óformlegt félagslegt taumhald í félagsauðnum, sem
dreifbýlislögreglumenn nota til að þurfa síður að beita formlegri inngripum (Souhami, 2020). Fólk
í sterkum og samheldnum samfélögum lætur t.a.m. félagsleg vandamál sig frekar varða (Sampson
o.fl., 1997) og hefur jafnan sterkari tilhneigingu til fylgispektar. Orðrómur (t.d. um frávik og áherslur
lögreglu) berst hratt í slíku umhverfi, sem dreifbýlislögreglumenn nýta sér við upplýsingaöflun og
-miðlun (Black, 1984). Loks töluðu viðmælendur um að snúa áskorunum dreifbýlisins sér í hag.
Gott dæmi er hvernig dreifbýlislögreglumenn nota löngu vegalengdirnar til þess að halda yfirvegun
og leggja á ráðin um bestu nálgunina.
Óskýr mörk vinnu og einkalífs: Þar sem allir þekkja alla
Í dreifbýlinu þekkja allir lögreglumanninn og starfið verður ráðandi staða viðkomandi (e. master
status), þ.e. staðan sem yfirskyggir annað við einstaklinginn (Becker, 1963). „Allir þekkja alla í
dreifbýlinu. Allir þekkja þig. Allir vita að þú ert lögreglumaðurinn, hvert sem þú ferð“ (Birgir). Við-
mælendur báru þetta saman við það að vinna í fjölmennu þéttbýli. „Það er gríðarlegur munur. Á litlu
stöðunum þarftu að díla við borgara sem þú hittir síðan í pottinum eftir vakt eða í búðinni og þú þarft
að geta boðið góðan daginn“ (Hannes). Það sem flækir enn frekar tilveru dreifbýlislögreglumanna
hvað þetta varðar er að ýmsir sem þeir hafa afskipti af eru tengdir þeim. Í eldri rannsókn á heiðar-
leika lögreglumanna, sem dæmi, vakti Ólafur Örn Bragason (2005) athygli á því að lögreglumenn
eiga frekar á hættu að lenda í siðferðisklemmum í smærri umdæmum. Í sömu rannsókn kemur engu
að síður fram að siðferðiskennd lögreglumanna mældist sterkust í minnstu umdæmunum og að ís-
lenskir lögreglumenn mælast almennt mjög heiðarlegir í alþjóðlegum samanburði.
Nálægð almennings og lögreglu er að mörgu leyti ákjósanleg og er t.a.m. hryggjarstykkið í svo-
kallaðri samfélagslöggæslu (e. community policing), sem leggur áherslu á nána samvinnu við al-
menning, m.a. varðandi forvarnir (Skogan, 2008). Mikill brúandi félagsauður í dreifbýli (Besser,
2009) ýtir undir samvinnu almennings og lögreglu, sem er lykilatriði við að halda uppi lögum og
reglu. Óformleg samskipti geta m.a. miðlað gagnlegum upplýsingum og þannig stutt við árang-
ursríka löggæslu. Þá gætu dreifbýlislögreglumenn ekki sinnt starfi sínu ef viðkomandi hefðu ekki
samvinnufúsan almenning á sínu bandi. Eftirfarandi ummæli sýna t.d. hvernig almenningur hjálpar
dreifbýlislögreglumönnum:
Og ef við erum að spá í eins og varðandi ölvaða menn, þá vorum við oft einir eða
yfirleitt tveir að fara í svoleiðis en þá höfðum við svo mikinn styrk í samfélaginu.
Til dæmis dyraverðir aðstoðuðu okkur alveg gríðarlega mikið og það voru yfir-
leitt einhverjir björgunarsveitamenn þarna og það var oft bara stutt í aðstoðina.
Maður einhvern veginn þekkti alla og gast þá kallað til og beðið um aðstoð. En
síðan gat þetta líka virkað öfugt með þessi tengsl, af því þetta er svo lítið sam-
félag (Orri).