Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 47

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 47
Guðmundur Oddsson og Andrew Paul Hill 47 .. Durlauf og Nagin (2011) staðhæfa að afbrotafræðingar ættu að horfa til velmegandi (síð)nú- tímaþjóðfélaga sem hafa náð að halda afbrotum niðri og fangelsunartíðni lágri þrátt fyrir örar þjóð- félagsbreytingar með því að beita m.a. markvissri löggæslu. Þeir spyrja: „Að hve miklu leyti reynir lögreglan að virkja óformlegt félagslegt taumhald samfélagsins til að stemma stigu við afbrotum?“ (bls. 41). Baumer (2011) segir jafnframt að við þurfum að leita út fyrir réttarvörslukerfið í löndum með lága glæpatíðni til að greina hvernig þjóðfélagsskipanin dregur úr afbrotum. Ísland hefur lága glæpatíðni og mjúk löggæsla dreifbýlislögreglumanna á sinn þátt í árangrinum. Lögreglumenn víða gætu lært sitthvað af mjúkri nálgun íslenskra dreifbýlislögreglumanna. Hætta er þó á að aukin mið- stýring „geri mjúka löggæslu erfiðari viðfangs með því að breyta hlutverki dreifbýlislögreglumanns- ins í eitthvað sem er meira í ætt við viðbragðsaðila í þéttbýli“ (Wooff, 2017:129). Þrátt fyrir áskoranirnar sögðu viðmælendur að þeim líkaði sjálfræðið sem fylgir starfi dreif- býlislögreglumannsins og að geta séð árangur erfiðis síns. Þeir voru einnig meðvitaðir um að mikil nálægð og þekking á nærsamfélaginu greiði fyrir þeim árangursríku samskiptum sem starf þeirra grundvallast á. Erlendar rannsóknir sýna einmitt að dreifbýlislögreglumenn eru jafnan ánægðir, eru stoltir af starfi sínu og finnst þeir hafa áhrif (t.d. Fenwick o.fl., 2012). Íslenskar rannsóknir sýna að lögreglumenn í landsbyggðunum eru, að meðaltali, ánægðari en lögreglumenn á höfuðborgar- svæðinu. Þeir eru auk þess minna kvíðnir og þjást síður af þunglyndi og stressi, þrátt fyrir minni félagslegan stuðning (Ólafur Örn Bragason og Ólafur Kári Júlíusson, 2008; Tinna Jóhönnudóttir og Ólafur Örn Bragason, 2011). Ýmislegt bendir til þess að þær áskoranir dreifbýlislögreglumanna sem stafa af mikilli nálægð við nærsamfélagið (t.d. Buttle o.fl., 2010) séu ýktari í íslensku örsamfélagi en víðast annars staðar. Aukinheldur eru margir dreifbýlislögreglumenn uppaldir þar sem þeir vinna. Þessi atriði gætu skýrt, að hluta, af hverju það hefur löngum verið erfiðara að manna stöður í dreifbýli með menntuðum lög- reglumönnum. Þá er þess ekki krafist að íslenskir lögreglumenn starfi í ákveðinn tíma á mismunandi svæðum, eins og t.d. var gert í Skotlandi (Souhami, 2020). Þetta eykur hins vegar líkurnar á því að ekki takist að manna stöður í dreifbýli með menntuðum lögreglumönnum: Að of mikið mæði á af- leysinga- og héraðslögreglumönnum, að dreifbýlislöggæsla einkennist af mikilli starfsmannaveltu eða að dreifbýlislögreglumenn verði þaulsetnir. Vonast er til að færsla grunnnáms lögreglumanna á háskólastig og sambland fjar- og staðarnáms hjálpi til að þessu leyti (Guðmundur Oddsson o.fl., 2020). Rannsókn sýnir að um þrír af fjórum fjarnemum í háskólum hérlendis búa áfram í heima- byggð að lokinni útskrift (Þóroddur Bjarnason og Ingi Rúnar Eðvarðsson, 2017). Loks töluðu ýmsir viðmælendur um að hafa verið „hent út í djúpu laugina“ snemma á starfsferl- inum sem dreifbýlislögreglumenn og að þeir hafi lært mest af reyndari lögreglumönnum. Þrátt fyrir bratta lærdómskúrfu segjast þeir hafa lært mikið og að það myndi gera öllum lögreglumönnum gott að vinna sem dreifbýlislögreglumenn, þar sem slíkt geri viðkomandi fjölhæfari og hæfari í mann- legum samskiptum. Hversu vel eru þó verðandi lögreglumenn búnir undir dreifbýlislöggæslu í ljósi viðvarandi manneklu og aukinnar miðstýringar? Vissulega þarf að fræða verðandi lögreglumenn um sérstakar áskoranir dreifbýlislöggæslu í námi þeirra en – miðað við hversu samofin dreifbýlislög- gæsla er umhverfinu – „er nokkurn tíma hægt að bjóða upp á árangursríka þjálfun utan vinnuum- hverfisins og samhengis þess?“ (Slade, 2012:123). Þetta er mikilvægt úrlausnarefni hérlendis því lögreglumönnum sem staðsettir eru í fámennari byggðarlögum hefur fækkað. Mögulegar lausnir felast í því að verðandi lögreglumenn fái starfsþjálfun í bæði dreifbýli og þéttbýli, leggja enn meiri rækt við mjúka löggæslu, fara varlega í frekari miðstýringu og fjölga lögreglumönnum í dreifbýli. Þakkir Rannsókn þessi var styrkt af Byggðarannsóknasjóði Byggðastofnunar og Vísindasjóði Háskólans á Akureyri. Höfundar vilja þakka Rebekku Rún Sævarsdóttur og Sif Þórisdóttur fyrir hjálp við gagnaöflun og Oddi Ævari Guðmundssyni, Ólafi Erni Bragasyni, Rannveigu Þórisdóttur og Þóroddi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.