Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Blaðsíða 51
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 12. árgangur 2021, 51–71
© höfundar 2021. Tengiliður: Ómar Hjalti Sölvason, omarhjalti@unak.is
Vefbirting 18.október 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Væntingar Íslendinga og hugmyndir innflytjenda
um aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi
Ómar Hjalti Sölvason, MA í félagsfræði frá Háskólanum á Akureyri
Þorlákur Axel Jónsson, Aðjúnkt við Háskólann á Akureyri
Markus Hermann Meckl, Prófessor við Háskólann á Akureyri
Útdráttur: Hvaða hugmyndir eru ríkjandi um hvernig innflytjendur
verða fullgildir þátttakendur að íslensku samfélagi? Í rannsóknarverk-
efninu „Samfélög án aðgreiningar?“ voru spurningar um viðhorf til að-
lögunar innflytjenda og fjölmenningar lagðar fyrir hentugleikaúrtak inn-
flytjenda og slembiúrtak Íslendinga í tólf sveitarfélögum. Hér er þessum
viðhorfum lýst og athugað hvort þau tengist félagslegum bakgrunni svar-
enda og hvort fella megi þau í flokka aðlögunarkenninga um samþættingu
eða samlögun. Sett er fram lýsandi tölfræði fyrir væntingar Íslendinga
og innflytjenda til aðlögunar út frá aldri, kyni, menntun, tekjum, stöðu á
vinnumarkaði og búsetu. Gerð var línuleg aðhvarfsgreining á tengslum
þessara breyta við samlögunar- og samþættingarvæntingar. Niðurstöður
sýna að bæði heimamenn og innflytjendur gera ráð fyrir að innflytjendur
læri íslensku. Innflytjendur sjálfir hafa meiri væntingar um samlögun en
heimamenn hafa. Hærri aldur, karlkyn og minni menntun tengjast auknum
væntingum um samlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. Ekki koma
fram tengsl hugmynda Íslendinga um innflytjendur og þess hvort meiri
eða minni fjölgun innflytjenda hefur orðið í sama sveitarfélagi eða hverfi.
Sú niðurstaða er ekki í samræmi við eldri rannsóknir sem þóttu benda til
þess að fjölgun innflytjenda hefði í för með sér neikvæðara viðhorf Ís-
lendinga gagnvart þeim.
Lykilorð: Aðlögunarstefna – Innflytjendur – Hópógn – Samþætting
Abstract: What are the prevailing ideas about how immigrants become
part of Icelandic society? This paper joins previous studies in investigat-
ing the relationship between attitudes towards the integration of immi-
grants and socio-demographic variables. Our studies gathered data from
a convenience sample of immigrants and a random sample of Icelanders
in twelve municipalities. This paper describes reported attitudes. It further
examined the relationship between the social background of the respond-
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni