Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 73

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 73
Kristín Björnsdóttir og Ásta Jóhannsdóttir 73 .. Inngangur Ísland hefur verið markaðssett sem eitt af öruggustu löndum heims þar sem kynjajafnrétti er sagt í hávegum haft, glæpatíðni lág og loftgæði mikil (Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir, 2019). Það gleymist hins vegar oft að minnast á þá vá sem Íslendingar búa við af völdum náttúruhamfara eins og til dæmis eldgosa, jarðskjálfta, veðurofsa, skriða og snjóflóða. Oft á tíðum er um mannskæðar hamfarir að ræða sem hafa víðtækar afleiðingar, bæði fyrir einstaklinga og landsvæði. Til að tryggja sem best öryggi landsmanna starfar almannavarnadeild ríkislögreglustjóra við að takast á við þær ógnir sem steðja að lífi og heilsu almennings, umhverfi og eignum (Almannavarnir, 2016). Líklega má færa rök fyrir því að starfsemi almannavarna hafi verið óvenju sýnileg á síðast- liðnum árum í heimsfaraldri vegna COVID-19 og í tengslum við snjóflóð, aurskriður, jarðskjálfta og eldgos. Almannavörnum er ætlað að skipuleggja og stýra viðbrögðum sem virkjuð eru á hættustundu. Þrátt fyrir að vitundarvakning hafi orðið á undanförnum áratugum hvað varðar rétt fatlaðs fólks til þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra (Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, 2007) benda rannsóknir til þess að fatlað fólk hafi orðið útundan í allri umræðu um almannavarnir og hamfarir. Ekki hefur verið markvisst leitað svara við því hvernig styðja þurfi fatlað fólk í hamförum og neyð, hvernig það geti varið sig, stutt hvert annað eða tekið þátt í að undirbúa viðbragðsáætlanir (Alexander, 2011). Í íslenskum lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir (nr. 38/2018) og samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er sérstaklega kveðið á um skyldur stofnana til að eiga í markvissu og virku samráði við fatlað fólk (Gísli Björnsson, o.fl., 2019). Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ber þar af leiðandi lögum samkvæmt líkt og öðrum ríkisstofnunum að eiga virkt samráð við fatlað fólk. Markmið þessarar greinar er tvíþætt. Í fyrsta lagi að gefa yfirlit yfir hamfarir, viðbrögð við þeim og afleiðingar fyrir fatlað fólk með því að greina hvernig fötlun samtvinnast öðrum félagspólitískum þáttum sem hafa áhrif á jaðarsetningu fatlaðs fólks. Í öðru lagi að greina viðbragðsáætlanir almannavarna og leiðbeiningar í hamförum með tilliti til aðstæðna fatlaðs fólks. Notuð var innihaldsgreining þar sem tekið var mið af umfangi fötlunar í gögnunum og sjónum beint að félagspólitískum þáttum á borð við stétt, kyngvervi, aldur og fötlun. Feminískum kenningum um samtvinnun var beitt sem fræðilegu verkfæri til að greina þessa þætti og hvernig þeir verka á sam- félagið samtímis og samhliða (Lykke, 2010). Ekki hefur verið fjallað um fatlað fólk og hamfarir áður í íslensku fræðasamfélagi. Er þessi grein liður í því að vekja athygli á sérstökum aðstæðum fatlaðs fólks þegar ógn steðjar að samfélaginu og hvetja til frekari umfjöllunar á þessu sviði. Gagnrýnin fötlunarfræði Fötlunarfræði sem fræðigrein tekur gagnrýna afstöðu til þeirra hugmynda um fötlun sem einkennast af eðlis- og einstaklingshyggju og skilgreina fatlað fólk sem gallað og í þörf fyrir íhlutun og læknis- fræðileg inngrip svo það passi betur inn samfélög hinna ófötluðu (Hanna Björg Sigurjónsdóttir, o.fl., 2013). Þessi grein byggir, nánar tiltekið, á gagnrýninni fötlunarfræði (e. critical disability studies) sem er þverfagleg fræðileg nálgun þar sem leitast er við að skilja fötlun í menningarlegu, sögulegu og félagslegu samhengi. Gagnrýnin fötlunarfræði útskýrir hvernig hugmyndir um fötlun verður til í félagspólitísku samhengi og beinir sjónum að því á hvern hátt slíkar hugmyndir hafa áhrif á fatlað fólk, undirskipa það og jaðarsetja (Goodley, o.fl., 2017). Meðal viðfangsefna gagnrýninnar fötlunar- fræði er að greina og afhjúpa valdamismun og félagslegt misrétti. Þau greiningartæki sem við teljum gagnleg í þessari grein eru samtvinnun og ableismi1. Samtvinnun hefur verið notuð af mörgum fræðimönnum innan gagnrýnna fötlunarfræða (An- 1 Ýmsir hafa gert tilraunir til að þýða enska hugtakið ableismi án þess að ásættanleg niðurstaða hafi fengist. Hæfishroki, hæfishyggja og fötlunarfordómar ná merkingu hugtaksins ekki til fullnustu. Þess má geta að grasrótarhreyfing fatlaðs fólks hefur kosið að nota enska hugtakið ableismi og munum við fylgja þeirra fordæmi (sjá nánar Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Freyja Haraldsdóttir, 2014).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.