Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 74

Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Page 74
Fatlað fólk í hamförum 74 .. namma, o.fl., 2013; Ben-Moshe og Magaña, 2014; Everelles, 2014; Goodley o.fl., 2019; Meekosha og Shuttleworth, 2009) Samtvinnunarkenningar (e. intersectional theory) eiga rætur að rekja til verka bandarísku fræðikonunnar Kimerlé Crenshaw (1991) sem skoðaði hvernig svartar konur eru jaðarsettar í bandarísku samfélagi vegna kyngervis og hörundslitar. Hugmyndir Crenshaw hafa þróast síðan þá í þverfaglega og gagnrýna nálgun sem gerir okkur kleift að greina samfélagslega mismunun og forréttindi sökum hörundslitar, uppruna, stéttar, fötlunar, aldurs, kynverundar og kyn- gervis sem hverfist um mismun og félagslegt réttlæti (Harris og Patton, 2019). Samtvinnun er fræði- legt verkfæri sem greinir valdamismunun í samfélaginu og skoðar hvernig mismunabreytur á borð við kyngervi, fötlun og hörundslit tengjast og í sameiningu stuðla að því að skapa og viðhalda fé- lagslegu misrétti (Lykke, 2010). Ableismi er hugtak sem lýsir fordómum og mismunun sem beinist gegn fötluðu fólki. Ableismi byggir á þeirri viðteknu hugmynd, gildum og venjum að samfélagið sé fyrst og fremst ætlað ófötl- uðu fólki og að ófötlun sé hið fullkomna líkamlega ástand (Campbell, 2009). Ableismi felur þar af leiðandi í sér þá hugmynd að fatlað fólk sé óæðra ófötluðu fólki og að skerðingin skilgreini fatlað fólk á neikvæðan hátt (Linton, 1998). Ableismi er samofinn samfélaginu og stofnunum þess á borð við fjölmiðla, skólakerfi og heil- brigðiskerfi sem taka þátt í að skapa hann og viðhalda honum. Dan Goodley (2014) heldur fram að ableismi sé alltumlykjandi þannig að þegnar samfélagsins andi honum að sér óafvitandi, meðal ann- ars í gegnum fjölmiðla. Þeir birti oft á tíðum óraunsæja mynd af lífi og reynslu fatlaðs fólks byggða á klisjum og staðalímyndum. Í skólakerfinu má greina ableískar hugmyndir, til að mynda að það sé betra fyrir fatlaða nemendur að ganga heldur en að nota hjólastól, lesa prentstafi í stað punktaleturs; með öðrum orðum er gerð krafa um að þeir aðlagi sig skólastarfinu og líkist sem mest ófötluðum nemendum (Hehir, 2002). Ableismi birtist einnig í heilbrigðiskerfinu þar sem heilbrigðisstarfsfólk metur lífsgæði fatlaðs fólks lakari en það gerir sjálft sem getur haft áhrif á ákvarðanatöku um með- ferð og þá þjónustu sem veitt er af hálfu heilbrigðisstarfsmanna (Peña-Guzmán og Reynolds, 2019). Ableismi er ósýnilegur hluti af ríkjandi hugmyndafræðilegu kerfi (Goodley, 2014) en Embla Guð- rúnar Ágústsdóttir og Freyja Haraldsdóttir (2014) hafa dregið upp skýra mynd af því hvernig able- ismi gerir ráð fyrir að fatlað fólk sé gallað og að það þurfi að laga sig að samfélaginu: Ableismi einkennist af þeim hugmyndum að fatlað fólk sé gallað og því sé m.a. í lagi að eyða fötluðum fóstrum lengur en ófötluðum fóstrum og að aðgreina fatlað fólk í sérúrræðum, t.d. á vernduðum vinnustöðum þar sem það fær oft lítil sem engin laun fyrir vinnu sína. Til þess að fatlað fólk megi vera til eða taka þátt í samfélaginu er ofuráhersla á að hæfa það, t.d. með sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun eða framkvæma aðgerðir til þess að draga úr því að líkaminn líti öðruvísi út en líkamar fólks sem er ekki fatlað. Með þessu er ekki átt við að öll þjálfun eða læknisfræðileg inngrip séu slæm heldur að sé hún notuð til þess eins að aðlaga fatlað fólk að samfélaginu og ófötluðu fólki, sé um ableisma að ræða. (Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Freyja Haraldsdóttir, 2014) Þetta sýnir hvernig félagslegri stöðu fatlaðs fólks í almannarými er háttað, hvernig hið ófatlaða augnaráð markar útlínur ableismans og metur verðleika líkamans og manneskjunnar út frá kapít- alísku notagildi hans (Embla Guðrúnar Ágústsdóttir o.fl., 2020). Kapítalískt notagildi líkamans er ríkjandi í vestrænum samfélögum sem hafa mótast af hugmyndafræði nýfrjálshyggju. Brown (2006) útskýrir hvernig nýfrjálshyggjan felur í sér framleiðslu þegna þar sem siðferðilegt gildi þeirra mælist í því hvernig þeir geta séð um sig sjálfir. Kapítalískar hugmyndir um sjálfstæði og einstaklings- hyggju má gagnrýna fyrir að vera óraunhæfar og útilokandi fyrir fólk almennt en sérstaklega fyrir fatlað fólk. Þetta birtist meðal annars í því hvernig samfélagið er skipulagt en ýmsar manngerðar hindranir, eins og til dæmis tröppur og þröng rými, koma í veg fyrir fulla þátttöku fatlaðs fólks, svo og fordómar og neikvæð viðhorf. Óaðgengilegt umhverfi í samfélaginu kallar á síðbúnar lausnir sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.