Íslenska þjóðfélagið - 23.12.2021, Side 87
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 12. árgangur 2021, 87–104
© höfundar 2021. Tengiliður: Már Wolfang Mixa, marmixa@ru.is
Vefbirting 18.október 2021. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
„Þú veist ekki hvaða húsnæði þú ferð í næst“:
Tvísýnleiki og upplifun leigjenda af íslenskum húsnæðismarkaði
Már Wolfgang Mixa, Lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
Kristín Loftsdóttir, Prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands
Anna Lísa Rúnarsdóttir, Verkefnisstjóri við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands
Útdráttur: Hugtakið tvísýnleiki (e. precarity) hefur á síðustu árum
verið notað í auknum mæli erlendis, m.a. til að lýsa viðkvæmri stöðu ein
staklinga á leigumarkaði. Í slíku samhengi dregur hugtakið fram hvernig
formgerðir samfélagsins gera stöðu sumra einstaklinga viðkvæma og und
irstrikar mikilvægi þess að setja reynslu þeirra í vítt samhengi. Þessi grein
fjallar um íslenskan leigumarkað og gagnsemi hugtaksins til þess að skýra
hvort og hvernig uppbygging leigumarkaðarins síðastliðin ár skapar leigj
endum aðstæður sem einkennast oft af óöryggi. Teflt er saman megind
legum og eigindlegum gögnum, þ.e. tölfræðiupplýsingum um umfang og
ástand leigumarkaðarins, sem og reynslusögum leigjenda sem safnað var
með viðtölum árið 2020. Viðmælendur voru bæði Íslendingar og einstak
lingar af erlendum uppruna búsettir á Íslandi. Bent er á að séreignastefna
hefur löngum einkennt hérlendan húnæðismarkað og staða leigjenda er oft
á margan hátt tvísýn.
Lykilorð: Húsnæðismarkaður/leigumarkaður – Tvísýnleiki – Leigj
endur – Heimili – Fordómar
Abstract: The term precarity has been increasingly used abroad in re
cent years, e.g. to refer to individualsʼ vulnerable position on the rental
market. The concept contextually highlights how social structures make
some individuals vulnerable and underlines the importance of contextual
izing their experiences broadly. The article discusses the Icelandic rental
market and the conceptʼs usefulness for understanding whether and how
the development of the rental market in recent years creates precarious
conditions for tenants. The study combines quantitative and qualitative
data, i.e. statistical information on the scope and state of the rental mar
ket, and tenantsʼ experiences, collected through interviews in 2020. The
interviewees were both Icelanders and people of foreign origin living in
Iceland. A private housing policy has historically characterized the Icelan
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni