AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Síða 17

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Síða 17
Akureyri virðist því hafa hagnast á þeim breyting- um sem orðið hafa í landbúnaði, og bærinn hefur sterka stöðu í úrvinnslugreinum landbúnaðar. Kaupfélagið hefur m.a. haldið uppi mikilli vinnslu á mjólkur- og kjötafurðum. Næst ber að telja fækkun starfa í fiskiðnaði. Þegar útgerð hófst í einhverjum mæli hérlendis, myndaðist þéttbýli vegna nauðsynlegrar nálægðar við fiskimiðin. Með breyttum skipum og fram- leiðsluháttum er þessi nauðsyn ekki lengurtil stað- ar. Skipin geta siglt lengri leið en fyrr með aflann án þess að hann skemmist, hluti hans er unninn um borð, og landvinnslan byggist á stærri fram- leiðslueiningum en fyrr. Akureyri virðist einnig hafa hagnast á þessum breytingum. Þar starfa nú tvö af öflugustu útgerðarfélögum landsins, Útgerðarfélag Akureyrar og Samherji, sem eiga mikinn togara- flota, m.a. marga frystitogara, og kvótastaða þeir- ra er sterk. Eyjafjarðarsvæðið er meðal stærstu bolfisklöndunarsvæða landsins, bæði hvað varðar landað magn og einnig hvað varðar aflaverðmæti. Þjónusta við sjávarútveginn er öflug, og sjá- varútvegur í Eyjafirði sækir sína þjónustu til Akureyrar. Þekkingarsamfélagið Þriðja orsök búseturöskunar er aukinn hluti þekkingar í framleiðslunni. Þessi þekking liggur í þeirri tækni, sem notuð er við framleiðsluna, vél- um, verkþekkingu, markaðssetningu og fleiru þess háttar. Þetta kemur meðal annars fram í aukinni hagræðingu, sem leiðir til fækkunar starfa í beinni framleiðslu. Þess í stað skapast störf í alls kyns þekkingariðnaði tengdum framleiðslunni, tækni- þróun, menntun, markaðsmálum o.þ.h. Nú ertalið að í flestum framleiðslugreinum liggi einungis 10% verðmætasköpunar í sjálfri framleiðslunni, en 90% í þekkingariðnaði tengdum henni. Akureyri hefur ekki farið varhluta af þessari þróun. Um miðja síðustu öld risu miklar verksmiðj- ur á Akureyri, og varð Akureyri þá öflugur iðnaðar- bær. Ber þar helst að nefna fataiðnað, fiskiðnað og skipasmíðar. Um miðjan áttunda áratug síðustu aldar fór að halla undan fæti á Akureyri, og þar gætti um tíma stöðnunar og jafnvel nokkurrar hnignunar. Hinum miklu fataverksmiðjum var lok- að, fyrirtæki eins og niðursuðuverksmiðja K. Jóns- sonar lögðust niður, umfang Slippstöðvarinnar minnkaði snarlega og störfum fækkaði í land- vinnslu hjá Útgerðarfélagi Akureyrar. Þótt oft sé talað um að störfin hverfi, er málið ekki svo einfalt. Oft flytjast þau úr framleiðsluþættinum í verksmiðjunni yfir í þekkingariðnaðinn. Þau störf lenda í mestum mæli á höfuðborgarsvæðinu, en þó hefur tekist að byggja upp nokkurn hluta þeirra á Akureyri, þar sem nú starfa öflug fyrirtæki í rannsóknarstarfsemi og upplýsingatækni, að hluta til í samstarfi við Háskólann á Akureyri. Þessi fyrirtæki og Háskólinn hafa orðið sú lyftistöng, sem lyft hefur Akureyri úr þeirri lægð sem hún var komin í og mun eflaust ráða framtíð bæjarins að miklu leyti. Undir lok níunda áratugarins fór hagur Akureyrar að glæðast á ný, og munar þar mest um stofnsetn- ingu Háskólans á Akureyri, auk uppgangs í há- tæknigreinum. Háskólinn stundar m.a. rannsóknir á sviði sjávarútvegs og fiskeldis, auk Þess sem Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Hafrann- sóknastofnun hafa þar útibú. Akureyri er miðstöð þekkingar í sjávarútvegi, og góð þekking er hjá fyrirtækjum eins og Útgerðarfélagi Akureyrar og Samherja. Akureyri á góða möguleika á fjar- og gagna- vinnslu, og styrkur svæðisins hvað það varðar felst í góðri almennri þekkingu fólks á tölvunotkun. Samkvæmt skýrslu Atvinnuþróunarfélags Eyja- fjarðar eru upplýsingamiðstöð á heilbrigðissviði og miðlæg skráning á lyfjum fyrir fólk í heilbrigðisgeir- anum meðal þeirra fjar- og gagnavinnsluverkefna sem henta vel til vinnslu á svæðinu. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar hefur að undan- förnu unnið að uppsetningu frumkvöðlaseturs á Akureyri. Það verður í umsjá atvinnuþróunarfél- agsins og í húsnæði Háskólans. Þessu til viðbótar verður Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar þar til húsa, svo og hugbúnaðarfyrirtækið Skrín sem er dótturfyrirtæki Skýrr. Akureyri hefur einnig sterka stöðu í fjölmiðlun, þar er gefið út eitt af þremur dagblöðum landsins, þar er sjónvarpsstöð og svæðisútvarp. Akureyri var upphaflega verslunarbær og á sér langa hefð sem sterkur verslunar- og þjónustukjarni. Akureyri fékk kaupstaðarréttindi árið 1862 og árið 1886 var þar stofnað kaupfélag, sem síðar varð sterkasta kaupfélagið utan Reykjavíkur og eitt þeirra fáu sem enn eru til. Akureyri var einnig þekkt fyrir veru danskra kaupmanna, sem voru mjög áberandi í bæjarlífinu. Mikil uppbygging hefur nýlega orðið í verslunar- og þjónustustörfum á Akureyri og nú hafa stórar verslanakeðjur fest þar rætur. Akureyri er með yfir- burðastöðu í uppbyggingu þjónustu á landsbyggð 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.