AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 30

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Side 30
smiðjusvæði við Glerá og svæði norðan Síðu- hverfis. í aðalskipulaginu er leitast við að tryggja helstu þjónustu- og menntastofnunum bæjarins nægilegt svigrúm til vaxtar og möguleika á aðlaðandi um- hverfi og hafa því lóðir margra stofnana verið skil- greindar á landnotkunaruppdrætti sem stofnana- svæði með útivistargildi. Þannig er t.d. Háskólan- um á Akureyri væntanlega tryggt nægilegt vaxtar- rými þar sem hann er staðsettur nálægt miðju bæjarins á svæði með mikilli náttúrufegurð, s.k. Sólborgarsvæði, sem er verndunarsvæði að hluta. Ætla má að á þessu svæði verði vaxtarbroddur í mennta- og rannsóknastarfsemi á komandi árum og vonandi áratugum. í Naustahverfi er gert ráð fyrir þjónustustarfsemi sem getur verið í nálægð og nánum tengslum við íbúðabyggð og myndað kjarna hennar. Þannig er afmarkað miðsvæði eftir endilöngu hverfinu og er auk þess gefinn kostur á atvinnustarfsemi austast í hverfinu, annaðhvort sem hluti af íbúðabyggð eða aðskilinn frá henni. Landnotkunaruppdráttur og sveit- arfélagsuppdráttur Uppdrættir aðalskipulagsins eru annars vegar svokallaður sveitarfélagsuppdráttur sem er ný- mæli og sýnir allt bæjarland Akureyrar í mkv. 1:35.000 og hins vegar hefðbundinn landnotkun- aruppdráttur í mkv. 1:10.000 sem sýnir þéttbýlasta hluta bæjarlandsins og fylgir sá uppdráttur smækkaður með þessari grein. Frá því að aðalskipulagið var samþykkt vorið 1998 hafa verið samþykktar þrjár breytingar á landnotkunaruppdrætti. Stærsta breytingin er sú að á austurhluta fyrrum verksmiðjusvæðis á Gler- áreyrum hefur landnotkun verið breytt úr athafna- svæði í verslunarsvæði og byggð þar um 10.000 m2 verslunarmiðstöð, Glerártorg. Hinar breyting- arnar varða stækkun leikskólasvæðis á Oddeyri og stækkun athafnasvæðis við Langholt í Glerár- hverfi. Endurskoðun aðalskripulagsins Hafin er vinna við endurskoðun aðalskipulagsins og hafa allar nefndir bæjarins, helstu samstarfs- aðilar og nágrannasveitarfélög þegar átt þess kost að hafa áhrif á markmiðssetningu í nýrri aðal- skipulagstillögu. Gert er ráð fyrir að endurskoða landnotkunarflokka og landnotkun, m.a. með hlið- sjón af stefnu bæjaryfirvalda um að þétta byggð í bænum og nýta betur byggingarland innan núver- andi byggðarmarka. Loks verður gerð ný tillaga um legu tengibrauta milli núverandi byggðar og nýs hverfis sunnan hennar, Naustahverfis, en í gildandi aðalskipulagi var skipulagi frestað á því svæði þar sem umræddar tengibrautir gætu legið. Gera má ráð fyrir að í endurskoðuninni verði í auknum mæli hugað að hlutverki Akureyrar sem langstærsta þéttbýlis utan Faxaflóasvæðisins, þét- tbýlis sem býður upp á nauðsynlega fjölbreytni og aðlaðandi umhverfi til þess að vera ákjósanlegur staður til búsetu í nútímasamfélagi. ■ 28

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.