AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Síða 33
og rétt í þessu hjarta. Bílnum er lagt og mönnum
er gert að nýta líkamsorkuna, sem kemur sér vel á
sumrin en ekki svo mjög á stórviðrisdögum vetrar-
konungs. Oft státa Akureyringar sig af mikilli veð-
urblíðu, sem skilar sér í sölu á rjómaís niðri á
Torgi, en veturnir eru hins vegar ekki mjög mjúkir
við vangann og því er staldrað stutt í Göngugöt-
unni. Yfirbyggð þjónustu- og verslunarmiðstöð
þykir því nauðsynleg gagnvart því mikla vetrarríki
á Akureyri. Með því að hafa hana nálægt mið-
bænum gæfist fólki kostur á að leggja bílum
sínum, versla og sinna erindum sínum við hið
opinbera og þannig að vinna að orkusparnaði og
minni mengun í umhverfinu. Þó land sé hlutfalls-
lega ódýrt á íslandi, á evrópskan mælikvarða, þá
er kostnaður mikill í sambandi við orku og rekstur.
Ef byggð er dreifð, og langt er til íbúðarhverfa,
skóla og þjónustu, þá þeytist einkabíllinn fram og
aftur. Landnýting þarf því að vera í fyrirrúmi, not á
ónotuðum svæðum að vera meiri og hverfa-
skipulag þéttara.
La Galleria Vittorio Emanuele (1867), í hjarta
Mílanóborgar á Ítalíu, er einstakt dæmi um hvern-
ig mikilfengleg höll verslunar og viðskipta sam-
einast skipulagi borgarinnar sjálfrar og tengir tvö
mikilvægustu menningartákn borgarinnar - dóm-
kirkjuna (Piazza del Duomo) og óperuhúsið La
Scala (Piazza della Scala) og aðliggjandi torg þeir-
ra. Yfirbyggð hvelfingin var einstök af sinni gerð á
sínum tíma, úr járni og gleri. Borgarbúar voru mjög
stoltir af þessu stórvirki sem var stærst sinnar
tegundar í heiminum. Breiðstræti þess voru 200
metra og 100 metra löng og miðtorgið 170 x 130
að flatarmáli. Stærð þess og burðir voru tákn síns
tíma um nútímatækni og endurspeglaði einstakt
hugmyndaflug og vald byggingarlistar og iðnaðar.
La Galleria er hluti af borgarmynstrinu, ekki
aðeins í skipulagi sínu heldur ekki síður í því
hvernig framhliðar bygginganna innan hennar
endurspegla formlögun framhliða borgarinnar
sjálfrar. Þegar gengið er inn í La Galleria, upphit-
uð á köldum vetrum, er ekki verið að fara inn í
annan heim heldur er hún áframhald af borginni,
hluti af innra rými hennar. Glerþak þekur götur
hennar sem verður þess valdandi að gangandi
fólkið hefur tilfinningu fyrir tímanum þegar líða
tekur á daginn. Hún er viðkomustaður þar sem fólk
sinnir bæði verslun og viðskiptum, kemur skoð-
unum sínum á framfæri í uppákomum eða spjallar
við kunningjana, auk þess sem hún er hluti af
gönguleiðinni um borgina á sunnudagsmorgnum
Grunnmynd La Galleria sýnir hvernig hún virkar sem
tengiliður ólíkra þátta innan borgarmynstursins.
að sýna sig og að sjá aðra.
Fyrirmynd og hugmyndir að verslunarmiðstöð
geta komið frá ýmsum áttum, bæði að vestan frá
Bandaríkjunum og austan úr Evrópu.
Staðsetning verslunarmiðstöðvar í Bandaríkj-
unum er almennt fyrir utan miðborgina, í útjaðri
hennar og er komið að henni á bílum. Aðgangur
greiður, næg bílastæði, stór rými, og innkaup auð-
veld. Engin hætta er á umferðarteppu eða öng-
þveiti. Hvað innra rými snertir þá er hún sniðin eftir
skipulagi gamalla miðbæja: litlar götur, torg og
gosbrunnar, kaffihús og litlar verslanir. Hún minnir
á fjarlæg suðræn lönd við Miðjarðarhafið, lönd rík
af menningu og sögu, en hér, í bandarískri svið-
setningu, er umhverfinu stjórnað meira, auk þess
Göngugatan á Akureyri, litir og mannlíf auðga hjarta
bæjarins.