AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 41
Hugmynd fram
míðbcer" á Akureyri
komin hjá Arkitektur.is. Verkefnisstjóri Páll Tómasson, arkitekt.
V A ikilvægast fyrir miöbæ er að
\ / hann sé lifandi og þar blóms-
\ / tri menningarlíf, verslun og
\ / þjónusta. Þróun undanfar-
\ / inna áratuga hefur fært stór-
V an hluta daglegrar verslunar
út í úthverfi og jaðar byggðar og breytt verslunar-
umhverfi miðbæjarins talsvert. Nú er risin á Gler-
ártorgi verslunarmiðstöð sem mun draga enn frek-
ar til sín verslun frá miðbænum.
Húsnæði í miðbænum er að mestu leyti verslun-
ar- og þjónustuhúsnæði. Aðkoma að svæðinu er
greið og mikið af bílastæðum. Tengsl við bílastæði
eru góð en þykja helst til langt frá göngugötu.
Mikilvægt er að styrkja þann hluta miðbæjarins
sem liggur milli göngugötunnar og bílastæðanna
við Skipagötu.
Stór hluti bygginga milli Hafnarstrætis og Skipa-
götu eru randbyggingar með portum (garðrýmum)
á milli. Portin eru nýtt sem bílastæði og að ein-
hverju leyti sem vöruaðkoma. Á tveimur stöðum
eru stígar í gegnum randbyggingarnar milli Skipa-
götu og Hafnarstrætis.
Tillagan miðast við að byggja yfir öll portin og
stígana með gleri. Gert er ráð fyrir að glerbygging-
arnar yrðu u.þ.b. fjórir metrar að hæð og væru að
mestu leyti lausar frá húsunum. Húseigendur
byggja síðan útbyggingar inn undir glerþakið. Á
þennan hátt er hægt að byggja eina samfellda
verslunarmiðstöð milli Hafnarstrætis og Skipa-
götu. Verslanir í þessum hluta miðbæjarins fá við
það einstakan möguleika til að auka starfsemi
sína með því að opna verslunarrými bæði inn í
yfirbyggða verslunarmiðstöð og út í göngugötu,
Skipagötu, Kaupvangsstræti og að Ráðhústorgi.
Tillagan gerir ráð fyrir að „innigatan” verði með
inngöngum frá göngugötu og Skipagötu auk þess
sem inngangur yrði gerður frá Kaupvangsstræti.
Frá bílastæðum við Skipagötu verður miðlægur
inngangur við pósthúsið.
Flatarmál verslunar og þjónustu á fyrstu hæð í
þessum randbyggingum er u.þ.b. 5.500 m2. Flat-
armál garðrýmanna er u.þ.b. 2.300 m2.
Heildarflatarmál 1. hæðar nýrrar verslunarmið-
stöðvar í miðbænum yrði því u.þ.b. 7.800 m2. ■
Göngugata, Skötagíl og Ráðhústorg
á Akureyri
Hugmyndatillaga unnin á Arkitektur.is. Verkefnisstjóri Páll Tómasson, arkitekt.
Forsendur: Göngugatan í Hafnarstræti
er ásamt Ráðhústorgi þungamiðja
miðbæjar Akureyrar og mikilvægasta
verslunarsvæði hans. Göngugatan er
jafnframt óformlegur samkomustaður
bæjarbúa og þjónar mikilvægu hlutverki
sem útivistarsvæði bæði þegar veðrið er þokka-
legt og við sérstaka viðburði og tyllidaga. Endur-
bætur á göngugötunni eru liður í að styrkja stöðu
miðbæjarins sem miðstöð verslunar og þjónustu á
Norðurlandi. Útfærsla þarf einnig að miða við að
stýra þeirri erindisumferð sem þar fer um með
þeim hætti að hún nýtist komi til þess að almennri
umferð verði hleypt á götuna síðar.
Skátagil er órjúfanlegur hluti af miðbæ Akur-
eyrar. Nauðsynlegt er að lagfæra Skátagil og taka
í því sambandi tillit til gönguleiða og útivistarmögu-
leika.
Ráðhústorg hefur verið umdeilt frá upphafi og
hefur mörgum þótt það grátt og drungalegt.
Áherslur:
Helstu áherslur í hugmyndatillögunni eru þær að
akbraut er lögð gegnum göngugötuna um suður-
hluta Ráðhústorgs og inn í Skipagötu. Akbrautin
er lögð þannig að gangandi og akandi umferð fari
sem best saman. Umferð gangandi er látin hafa
nokkurn forgang fram yfir akandi umferð. Göngu-
39
PALL TOMASSON, ARKITEKT