AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Síða 46
BJARNI SNÆBJORNSSON, VINNUEFTIRLITSMAÐUR
vinnuvernd í verki
VinnuVGfnC
/
hönnun
stæöa þess aö ég sting niöur
„penna” og tengi saman vinnu-
vernd og hönnun er reynsla mín
undanfarin tíu ár viö almennt eftirlit
á vinnustööum, sem er fólgið í því
aö vinnustaðir uppfylli lög nr. 46/
1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi. Jafn-
framt að farið sé aö reglum sem settar hafa verið
á grundvelli laganna.
Hvað scgja lög eg reglur?
í 93. gr. laganna segir m.a.: Sérhver sá sem ætl-
ar aö hefja rekstur fyrirtækis eöa breyta rekstri
eldra fyrirtækis skal leita umsagnar Vinnueftirlits-
ins um þaö hvort hin fyrirhugaða starfsemi sé í
samræmi viö lög þessi og reglugerðir settar sam-
kvæmt þeim. í því skyni skal viðkomandi láta
stofnuninni í té sundurliðaða greinargerð með
nægilegum uppdráttum yfir húsakynni og fyrir-
komulag véla, tækja og annars búnaðar og öðrum
upplýsingum sem máli kunna að skipta. í 95. grein
laganna segir ennfremur að hver sá, sem hefur
með höndum starfsemi, sem lögin gilda um skuli
hafa sérstakt starfsleyfi Vinnueftirlits ríkisins. f
reglum nr. 581/1995 um húsnæði vinnustaða er að
finna nánari ákvæði um hvaða kröfur eru gerðar til
atvinnuhúsnæðis.
Reynsla af vettvangi
Svo virðist sem sumum atvinnurekendum og
hönnuðum húsnæðis og innréttinga sé ekki full-
kunnugt um þessi ákvæði laga og reglna, sem
stundum hefur leitt til þess að vandamál hafa
skapast í vinnuumhverfinu. Það sem getur verið
áfátt er t.d. að starfsmannaaðstaða er ekki sam-
kvæmt reglum, Ijósgjafar eru rangt staðsettir,
hönnun og uppröðun vinnustöðva óheppileg með
tilliti til líkamsbeitingar, dagsbirtu og loftræstingar
o.fl.
Sem dæmi má nefna skrifstofuhúsnæði, þar
sem fyrst og fremst virðist hafa verið hugsað um
það sem grípur auga viðskiptavinarins. Of oft er
skrifstofubúnaður valinn án þess að hugað sé að
þörfum notandans og því hvaða verkefni er verið
að vinna. Einnig ber stundum á því að búnaðurinn
passi ekki inn í vinnurýmið og því hætta á að upp-
röðun búnaðarins verði röng með tilliti til lýsingar
og birtu frá gluggum. Lýsingu getur nefnilega verið
verulega áfátt þó birtumagnið sé nægjanlegt.
Stundum er staðsetning prentara, Ijósritunarvéla
og pappírslagers óheppileg.
Vinnuaðstaða hefur áhrif á afköst og líðan starfsmanna.
44