AVS. Arkitektúr verktækni skipulag


AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 58

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.04.2001, Page 58
Hljóðvist í Grafarvogskirkju II Ijóö í helgu rými hefur ákveðna merkingu I í huga fólks. Merkingin ræöst aö nokkru af I hljóðtæknilegum eiginleikum gömlu kirkn- I anna þar sem endurómur hljóös var mjög I langur, orgel- og kórtónlist hljómaöi vel en erfitt var aö skilja talað mál. Einnig og ekki síður markast merkingin nú á dögum af nýjum aðferðum til aö stýra hljómburði í kirkjum þannig aö bæöi tónlist og töluðu máli sé gert jafn hátt undir höföi. Á síöustu öld jókst mjög skilningur á hljóðtæknileg- um eiginleikum bygginga. Skilgreint hefur veriö hversu langur endurómur og aðrir hljóötæknilegir eiginleikar rýma henta fyrir hverja tegund tónlistar og einnig hvernig hægt er samtímis aötryggja góðan málskiljanleika. Mikils viröi er aðbeita samþættri hljómburðar- hönnun í stórum byggingum til þess að geta tryggt góöan hljómburð fyrir þá gerö tónlistar sem verður ríkjandi viö notkun viðkomandi rýmis og einnig til aö geta tryggt góöan málskiljanleika í sama rými. Frá upphafi var unnið aö hljóötæknilegri hönnun Grafarvogskirkju ásamt arkitektum kirkjunnar og þá miðað við samþættan hljómburö en meö því hugtaki er átt viö samofna hönnun hljóötæknilegra eiginleika byggingarinnar og hljóðkerfisins. Við tónlistarflutning eru þaö beint hljóötæknilegir eiginleikar byggingar- innar sjálfrar sem gera þaö að verkum aö tónlist fær notiö sín. Við flutning talaðs máls kemur hljóökerfi til sögunnar og tryggir góðan málskiljanleika. Hátalarar til talflutnings sjást þó ekki. í hljóökerfinu er ákveðin sjálfvirkni sem opnar og lokar hljóönemum, jafnar styrk talaös máls og seinkar hljóöi í ákveöna hátalara. í Evrópu er yfirleitt þessi háttur haföur á, náttúru- legur hljómburöur fyrir tónlist og hljóðkerfi fyrir talaö mál, sem gerir tónlist og töluöu máli jafn hátt undir höföi. í Bandaríkjunum aftur á móti er endurómur hljóös í nýjum kirkjum yfirleitt haföur stuttur og hljóö- kerfið notaö bæöi fyrir flutning tónlistar og talaös máls og er þaö ekki til eftirbreytni. í anddyri Grafarvogskirkju upplifa kirkjugestir lítinn enduróm hljóös. þegar gengið er inn eftir kirkju- gólfinu á átt aö helgidómnum vex endurómurinn og nær hámarki eins og Ijósiö viö hiö heilaga altari. Til aö ná fram þessum eiginleikum eru viöarþiljur á veggjum og í lofti kirkjunnar mikið gataöar viö and- dyrið og síöan minna og minna eftir því sem nær hegidómnum dregur. í sjálfu kirkjurýminu viö altar- iöer hátt til lofts sem eykur enduróm hljóös. Loft miðskips kirkjunnar einkennist af bogadregnum for- mum sem valda hljóðdreifingu allt niöur á lága tóna. Loftin eru ekki götuö nema rétt til aö koma hátölurum fyrir bak við gataðar loftaplötur þannig að þeir sjáist ekki. í hinum hallandi loftum hliðarskipa kirkjurým- isins eru bogar sem virka eins og dreifandi hljóð- speglar sem þjóna þeim tilgangi aö minnka bein ákveöin endurköst og dreifa frekar hljóöendurkasti frá flötunum í margar áttir, sem mildar og jafnar hljómburöinn án þess að stytta enduróm rýmisins. Hljód er okkar fa<r • Víðtæk hljóðtækniráðgjöf, hljóðhönnun og raftækniráðgjöf ■ yfir 30 ár • Ráðgjöf með tengsl við raunveruleikann • Notum háþróuð reiknilíkön þar sem það á við VERKSVIÐ: Hljóðtækniráðgjöf og hljóðhönnun • Samþættur hljómburður • Hönnun hljóðtæknilegra eiginleika bygginga • Hönnun hljóðkerfa í samræmi við eiginleika bygginga • Notkun reiknilíkana • Hljóðtæknileg hönnun bygginga • Útreikningur iðnaðarhávaða umhverfis verksmiðjur • Útreikningur umferðarhávaða • Raftækniráðgjöf og hönnun • Hönnun hljóðkerfa • Hverskonar raftæknileg ráðgjöf og hönnun HELSTU VERKEFNI: Verkefnin eru afar fjölbreytt. Sem dæmi má nefna: • Hljómburður og hljóðkerfi í 30 kirkjum, þar á meðal • Langholtskirkja • Grensáskirkja • Neskirkja • Nýtt hljóðkerfi sem skiiar góðum málskiljanleika í Hallgrímskirkju • Hljómburður og hljóðkerfi í Perlunni, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Kringlunni og á ótal fleiri stöðum • Stærsta hljóðkerfi á landinu hjá Álverinu í Straumvík • Hljóðtæknilegar rannsóknir varðandi fjöldamörg umhverfismöt svo sem fyrir álver. • Hljóðtæknilegar mælingar við alls konar aðstæður Tæknilegar mælingar • Hljóðtæknilegar mælingar • Mælingar á truflunum í rafkerfum • Fjölbreytilegar aðrar mælingar og rannsóknir ÁLFABAKKA 12 • 109 REYKJAVÍK • SÍMI: 587-1822 MÆLITÆKI Eigum stærsta safn hljóð- og titringsmælitækja á íslandi Hljóðvist ehf hljóð- og raftækniráðgjöf FAX: 587-1825 • GSM: 894 1100 • EMAIL: acusound@centrum.is

x

AVS. Arkitektúr verktækni skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: AVS. Arkitektúr verktækni skipulag
https://timarit.is/publication/1784

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.