Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Side 4
Pistill ritstjóra
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Ritnefnd: Kristín Rósa Ármannsdóttir, Sölvi Sveinsson,
Þorgerður Ragnarsdóttir
Ritstjóri ritrýndra greina: Þóra Jenný Gunnarsdóttir
Ritnefnd ritrýndra greina: Hrund Scheving Thorsteinsson,
Sigrún Sunna Skúladóttir, Þorbjörg Jónsdóttir,
Kristín Linda H Hjartardóttir, Páll Biering
Yfirlestur: Ragnheiður Linnet
Auglýsingar: Erna Sigmundsdóttir - sími 821 2755
Hönnun og umbrot: Þorbjörg Helga Ólafsdóttir
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík
s. 540 6400
hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Flugdrekinn
sem hrifsaði
framtíðardraumana
Sum augnablik lifa í minningunni þótt árin líði, virka jafnvel
saklaus og ómerkileg þegar þau koma upp en útskýra seinna
eitthvað sem engan grunaði á þeim tímapunkti. Þetta augnablik
var þannig. Tvær hamingjusamar vinkonur fóru í göngutúr á
páskadag þegar öldin var önnur og í kjölfarið fór líf annarrar
þeirrar á flug, tók svo dýfu og fór aftur á flug, hún varð eins og
flugdreki í roki sem flýgur stjórnlaust um himininn upp og niður
og steypist á endum niður í jörðina laskaður. Tjaslað saman
og er svo aftur reynt að koma á loft sem getur reynst þrautin
þyngri.
Þennan páskadag skartaði veðrið sínu fegursta, sól skein
í heiði, það var logn og frost svo það brakaði hressilega í
snjónum við hvert skref. Vinkona mín var lífsglöð, listræn og
klár, það var alltaf fjör í kringum hana. Við þurftum mikið að
spjalla og gengum lengi, byggingarkranar gnæfðu yfir okkur
um allt í hverfi sem var að rísa hratt. Við komum að flennistóru
auglýsingaskilti með mynd af brosandi fasteignasala sem var að
selja íbúðirnar í húsinu sem var að rísa fyrir aftan það. Vinkona
mín nam staðar, horfði á skiltið í smástund og sagði svo glöðum
rómi að þessi stóra blokk væri örugglega fullkomin fyrir Bill
Gates vin hennar! Hún var mjög sannfærandi þegar hún útskýrði
fyrir mér hvernig þau þekktust, sagði að hann væri frábær gaur
og að hún hefði lofað að hjálpa honum að finna hús á Íslandi.
Ég varð orðlaus, þekkti vinkona mín Bill Gates og hafði aldrei
nefnt það við mig fyrr? Því næst tók hún upp símann og ætlaði
að hringja í fasteignasalann, segja honum að hún væri líklega
með kaupanda að öllum íbúðunum í blokkinni. Mér fannst þetta
eitthvað undarlegt en hún var svo spennt og sannfærandi, gat
verið að hún og Bill væru svona góðir vinir að hún væri að leita
að húsnæði fyrir hann á Íslandi? En það var jú páskadagur og
ég sagði henni að fasteignasalinn væri örugglega í fríi, hún
samþykkti það og við héldum áfram að ganga eins og ekkert
hefði í skorist. Ekki löngu seinna frétti ég að vinkona mín væri
komin á geðdeild, hefði farið í maníu og væri veik. Þá áttaði ég
mig á því að Bill var ekki raunverulegur vinur hennar, manían
var byrjuð að krauma daginn sem Bill og blokkin áttu hug
hennar.
Í mörg ár á eftir var vinkona mín inn og út af geðdeild, það var
erfitt að horfa upp á unga efnilega vinkonu hverfa inn í heim
sem ég skildi ekki. Hún var samt alltaf sami húmoristinn, þrátt
fyrir áföllin sem dundu á henni næstu árin meðan sjúkdómurinn
fór með hana upp og niður eins og stjórnlausan flugdreka í roki.
Í dag er hún öryrki en kvartar aldrei, hefur fundið hamingjuna
á nýjan hátt og segist vera þakklát starfsfólkinu í geðinu
sem hefur hjálpað henni í gegnum árin. Vinkona mín er með
geðsjúkdóm sem bankaði upp á þegar hún var ung og efnileg og
átti framtíðina fyrir sér. Hún ætlaði sér stóra hluti og allir höfðu
trú á henni, draumar hennar myndu örugglega rætast hún var
svo hæfileikarík og dugleg. En sjúkdómurinn hrifsaði af henni
lífið á vissan hátt.
Það ætlar enginn að fá geðsjúkdóm, það ætlar enginn að
veikjast og horfa á framtíðardrauma sína verða að engu.
Neyðast til að aðlagast breyttum aðstæðum með geðsjúkdóm í
fanginu sem getur verið þungur baggi að bera ár eftir ár eftir ár.
Í þessu tölublaði er geðþema. Helga Sif Friðjónsdóttir segir
frá nýju meistaranámi í geðhjúkrun sem hefst í haust, hún
segir að geðheilbrigði og efling þess verði viðfangsefni til
framtíðar og að hjúkrunarfræðingar sem starfa við geðhjúkrun
á Íslandi séu allajafna eldhugar sem vinni magnað starf á
hverjum degi. Birna Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur og
teymisstjóri segir frá teymi sem er ætlað að þjónusta fólk með
alvarlegan geð- og fíknivanda á vettvangi og heitir Laufey eftir
ömmu sem bjó í Grjótaþorpinu og var þekkt fyrir að berjast
fyrir réttlæti lítilmagnans. Undirrituð hitti líka þær stöllur,
Hrönn Stefánsdóttur og Ragnheiði Eiríksdóttur en þær eru
hjúkrunarfræðingar í DAM-teymi göngudeildar lyndisraskana
LSH Kleppi og spjallaði við þær um þverfaglegt teymi sem
þjónustar fólk með langvarandi og djúpstæðan tilfinningalegan
óstöðugleika. Katrín Brynjarsdóttir segir svo frá morgunvakt
á meðferðardeild geðrofssjúkdóma og Ingibjörg Jónsdóttir,
prófessor í lífeðlisfræði, er í viðtali um kulnun. Þetta og margt
fleira fyllir síður sumarblaðsins og vona ég að þið, kæru
hjúkrunarfræðingar, njótið þess að drekka í ykkur fróðleik og
fræðigreinar í sól og sumaryl.
Að lokum vil ég óska Ragnheiði Ósk Erlendsdóttur hjúkrunar-
fræðingi hjartanlega til hamingju með heiðursmerki hinnar
íslensku fálkaorðu sem hún var sæmd fyrir störf í þágu
heilbrigðisþjónustu og baráttu við COVID-19. Ragnheiður var í
viðtali í síðasta tölublaði og þar sagði hún að sitt mottó í lífinu
væri að brosa og gefa frá sér jákvæða strauma.
Eitt bros getur svo sannarlega dimmu í dagsljós breytt.
Gleðilegt sumar og hafið það sem allra best!
4 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022