Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 22
22 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
Viðtal
Neysla ópíóða hefur færst í aukana á undan-
förnum árum, hvernig birtist þessi vandi ykkur?
,,Í okkar hópi eru einhverjir að nota ópíóða og sem
betur fer eru viðurkenndar aðferðir til að mæta
þessum einstaklingum og aðstoða þá í þeim efnum,
svo sem viðhaldsmeðferðir og neyðarlyfið naloxone.
Okkur hefur reynst erfiðara að mæta þörfum
þeirra sem nota örvandi vímuefni þar sem þau ýta
undir versnun á til dæmis geðrofssjúkdómum og
við erum því miður ekki með neina gagnreynda
viðhaldsmeðferð til að mæta þörfum þeirra.“
Er tilgangurinn með svona þjónustu að bæta
lífsgæði fólks eða er markmiðið að reyna að
fá fólk til að vera virka samfélagsþegna?
„Tilgangurinn er að bæta lífsgæði og að aðstoða
skjólstæðinga teymisins við að ná markmiðum
sínum. Einstaklingarnir sem þiggja þjónustu
teymisins eru jafnmismunandi og þeir eru margir
og því eru markmiðin misjöfn. Sem dæmi gæti
einn í okkar þjónustu haft áhuga á því að fara út á
vinnumarkaðinn á meðan annar hefur það markmið
að ná lágmarksjafnvægi á sínum geðsjúkdómi. Við
vinnum út frá batamiðaðri hugmyndafræði, bati
eins er ekki sambærilegur bata annars. Það væri
óraunhæft að ætla öllum sömu útkomu.“
Er það þín upplifun sem fagmanneskju í
geðþjónustu á Íslandi að úrræðaleysi sé
hindrun?
,,Úrræðaleysi er vissulega hindrun. Okkar fólk hefur
takmörkuð úrræði og þarf oft að bíða lengi, fær til
að mynda ekki sömu tækifæri til búsetu og aðrir svo
eitthvað sé nefnt.“
Hvaðan kemur nafnið á teymið, LAUFEY?
,,Við vildum ekki hafa gildishlaðið nafn sem felur í
sér eitthvað sem ýtir mögulega undir fordóma. Við
ákváðum því að heiðra ömmuna í Grjótaþorpinu,
Laufeyju Jakobsdóttur, með því að nefna teymið eftir
henni. Laufey barðist ávallt fyrir rétti lítilmagnans,
hún var þekkt fyrir störf sín í þágu unglinga í miðborg
Reykjavíkur og stóð vörð um ungar konur sem leið
áttu um Grjótaþorpið á síðkvöldum.“
Að endingu verður þú sem starfsmaður
teymisins vör við fordóma gagnvart þeim hópi
sem þú ert að sinna?
„Já því miður er það raunin. Fordómar eru miklir
gagnvart hópnum sem við sinnum, bæði innan
heilbrigðiskerfisins og utan þess. Fordómar eru
byggðir á vanþekkingu og því er það eitt mikilvægasta
hlutverk þeirra sem vinna með hópnum að vera
málsvari hans og veita fræðslu með það að markmiði
að minnka fordóma. Að sjálfsögðu á ekki að mismuna
einstaklingum út frá stöðu eða greiningum og því eiga
einstaklingar með tvígreiningu að hafa jöfn tækifæri
á við aðra,“ segir Birna að lokum og vonandi er þetta
viðtal liður í því að minnka fordóma gagnvart þessum
veikasta hópi samfélagsins.
„Okkur hefur reynst erfiðara að mæta
þörfum þeirra sem nota örvandi vímuefni
þar sem þau ýta undir versnun á til dæmis
geðrofssjúkdómum og við erum því miður
ekki með neina gagnreynda viðhaldsmeðferð
til að mæta þörfum þeirra.“