Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 75

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 75
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 75 Klamydía hefur verið mjög algengur kynsjúkdómur hér á landi undanfarna tvo áratugi einkum í aldurshópnum 15-25 ára og er nýgengi klamydíusýkingar á Íslandi með því hæsta sem þekkist í heiminum (Þórólfur Guðnason, o.fl., 2018). Lítið er vitað um smokkanotkun meðal ungra karlmanna hér á landi. Helstu upplýsingar um þá notkun er um hlutfall þeirra sem nota smokka. Í íslenskri landskönnun Bender og Kosunen (2005) meðal 17-20 ára ungmenna kom fram að 80% ungra karlmanna sögðust hafa notað smokk við fyrstu samfarir. Samkvæmt evrópsku HBSC-rannsókninni sem gerð var 2017 og 2018 kom fram að smokkanotkun 15 ára íslenskra unglingspilta við síðustu samfarir var 65% og hafði lækkað um 7% frá árinu 2014. Þegar smokkanotkun íslenskra unglingspilta er borin saman við önnur Evrópulönd þá er hlutfallið hærra (>65%) í 20 löndum (Inchley o.fl., 2020). Bæði foreldrar og jafningjar geta mögulega haft áhrif á smokkanotkun. Fram kom í rannsókn Hadley og félaga (2009) að unglingar sem höfðu rætt við foreldra um smokka voru líklegri til að nota þá. Nýlega hefur komið í ljós að þegar áttu sér stað miklar samræður unglinga við foreldra um kynheilbrigðismál þá var klámáhorf þeirra ekki tengt við litla smokkanotkun. Hins vegar reyndist vera samband á milli klámáhorfs og lítillar smokkanotkunar ef þessar samræður voru af skornum skammti (Wright o.fl., 2020). Í safngreiningu Tokunga og félaga (2020) kom einnig fram að töluvert klámáhorf tengdist meiri líkum á því að nota ekki smokk við kynmök en þar er ekki tekið mið af samræðum við foreldra. Þegar kemur að áhrifum vina geta þau verið í báðar áttir, fyrirbyggjandi eða ekki. Fram kom í rannsókn Henry og félaga (2007) að unglingar notuðu síður smokkinn ef vinir þeirra notuðu hann ekki. Margir aðrir þættir geta haft áhrif á það að smokkurinn er ekki notaður í kynlífi. Má þar nefna takmarkaða þekkingu, skert eða erfitt aðgengi, neikvæð viðhorf til smokksins og takmörkuð tjáskipti um notkun hans. Lítið er til af nýjum rannsóknum í vestrænum heimi á þekkingu ungra mann á smokkum og notkun þeirra. Rannsókn Crosby og Yarber (2001) meðal 16.677 ungmenna á aldrinum 15-21 árs sýndi að þekkingarskortur var til staðar um hversu þétt mætti setja smokkinn á getnaðarlim og töldu 40,2% ungra manna sem höfðu reynslu af smokkanotkun að það ætti ekki að vera neitt rými fremst. Auk þess töldu 33,5% þeirra að það væri í lagi að nota vaselín með smokk. Eins hefur komið fram í rannsóknum að aðgengi að smokkum getur verið miserfitt. Í eigindlegri rannsókn Breny og Lombardi (2017) sem gerð var í Bandaríkjunum meðal framhaldsskólanema kom í ljós að þátttakendur töldu aðgengi í búðum vera hindrandi þegar smokkar eru staðsettir nálægt kvenkyns vörum og þungunarprófum í matvörubúðum og apótekum. Í sömu rannsókn komu fram þau viðhorf að margir ungir menn telja að smokknum fylgi margir ókostir svo sem minni gæði kynlífs og minni ánægju sem þeir fá út úr kynlífinu. Önnur rannsókn meðal háskólanema var með svipaðar niðurstöður þar sem þátttakendur lýstu síðustu kynmökum miklu frekar ánægjulegum ef smokkar voru ekki notaðir (Millhausen o.fl., 2018). Að auki hafa rannsóknir sýnt að samræður um smokkanotkun skipti miklu máli við notkunina. Þátttakendur í rannsókn Breny og Lombardi (2017) greindu frá því að þeim fannst vandræðalegt að ræða smokkinn í hita leiksins. Í safngreiningu Noar, Carlyle og Cole (2006) kom fram að tjáskipti um smokkanotkun hafði sterk tengsl við smokkanotkun. Einnig virðast sérstakar samningaleiðir vera mikilvægar. Það sýndi sig í rannsókn French og Holland (2013) að þær samningaleiðir við smokkanotkun sem skiptu mestu máli fólust í því að neita að hafa kynmök nema smokkur væri notaður og þegar stuðst var við bein tjáskipti. Síðan þegar kom að því að nota smokkinn þá gátu ungir karlmenn haft áhyggjur af smokkanotkun því hún gæti eyðilagt „momentið“. Þessu er til dæmis lýst í rannsókn Chernick og félaga (2019) sem gera grein fyrir aðstæðum þar sem viðkomandi vill ekki skemma stemninguna undir þeim kringumstæðum þegar stelpan er hrífandi fögur og þegar farið er of geyst í hlutina. INNGANGUR SÓLEY S. BENDER prófessor Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Kvenna- og barnasvið Landspítala SNÆFRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR hjúkrunarfræðingur Landspítali SIGURBJÖRG LIND ELLERTSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur Sjúkrahúsið á Akureyri „Þetta er ekkert flókið“ Smokkanotkun ungra karlmanna Ritrýnd grein | Peer review Höfundar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.