Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 14

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 14
14 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022 Viðtal DAM-meðferð fyrir fólk sem glímir við tilfinningavanda Hrönn Stefánsdóttir og Ragnheiður Eiríksdóttir eru hjúkrunarfræðingar í DAM-teymi göngudeildar lyndisraskana LSH Kleppi. Teymið er þverfaglegt og þjónustar fólk með langvarandi og djúpstæðan tilfinningalegan óstöðugleika. Díalektísk atferlismeðferð (DAM) (e. DBT – dialectical behaviour therapy) byggist á kenningum um samspil líffræði og umhverfis. Meðferðin er fyrir fólk sem glímir við óstöðugleika í tilfinningastjórnun og unnið er út frá einkennum í meðferðinni en ekki ákveðnum greiningum. Fólk sem nýtir sér DAM-meðferð getur haft margvíslegar greiningar eins og til að mynda persónuleikaröskun, áfallastreituröskun, geðhvörf tvö, átröskun, þunglyndi o.fl. Við heyrðum í Ragnheiði og Hrönn og fengum þær til að segja okkur nánar frá DAM-meðferðarúrræðinu og teyminu. Hvenær tók þetta sérhæfða teymi til starfa og hver var hvatinn að því að vera með sérhæft teymi sem veitir DAM-meðferðarþjónustu? Hér á landi var byrjað að veita DAM-meðferð árið 2003 á Hvítabandinu á Skólavörðustíg en upphaflega var meðferðin þróuð í Bandaríkjunum fyrir um 30 árum síðan fyrir einstaklinga sem voru með jaðarpersónuleikaröskun og miklar sjálfsvígs- hugsanir og/eða sjálfsskaða. Meðferðin er gagnreynd og er notuð víðs vegar um heiminn. Í teyminu starfa sálfræðingar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, geðlæknir og iðjuþjálfi, en fleiri starfsstéttir koma einnig að þjónustu við skjólstæðinga. Unnið er út frá einstaklingnum þannig að aðkoma einstakra sérfræðinga fer eftir þörfum hvers og eins. Einstaklingar sem leita til teymisins hafa alla jafna reynt ýmis önnur meðferðarúrræði, s.s. HAM, en ekki náð viðunandi bata. Hvað er DAM-meðferð? DAM-meðferð er yfirgripsmikil geðmeðferð sem hefur það að markmiði að auka jafnvægi fólks í daglegu lífi. Unnið er út frá kenningu um samspil umhverfis og líffræðilegrar meðferðar. Í kenningunni er gert ráð fyrir að til þess að vandi komi fram sé til staðar líffræðileg viðkvæmni og óviðurkennandi umhverfi. Lykilatriðið er þá samspil þessara tveggja þátta. Tilfinningalegur óstöðugleiki kemur fram í röskun á stjórn á fimm þáttum: Óstöðugleika á tilfinningum, samskiptum, sjálfsmynd, hegðun og hugsun. Meðferðin skiptist í fjóra færniþætti sem eru núvitund, streituþol, tilfinningastjórnun og samskiptafærni. Færni er kennd í hóp einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn og mikil áhersla er lögð á heimavinnu og æfingar. Tilfinningastjórnun kennir færni til að draga úr tilfinningalegri viðkvæmni, læra að þekkja og bregðast við tilfinningum og draga þannig úr tilfinningalegri þjáningu. Streituþol fjallar um aðferðir til að þola við í óbærilegum aðstæðum eða líðan. Samskiptafærni snýst um sambönd við annað fólk. Til dæmis að biðja um það sem við þurfum og setja mörk. Núvitund er grunnurinn að allri færninni sem kennd er í DAM-meðferð. Með þjálfun í núvitund getum við betur gengist við aðstæðum okkar í lífinu en á sama tíma gert breytingar til hins betra. Hvernig er DAM-meðferð frábrugðin öðrum meðferðarúrræðum? HAM, hugræn atferlismeðferð, er sú geðmeðferð sem hefur helst verið notuð fyrir þann hóp sem sækir DAM-meðferð. Munurinn felst í því að í DAM er kennd færni til að bregðast við aðstæðum og tilfinningum á árangursríkan hátt og núvitund er grunnstoðin í meðferðinni allri. Viðtal og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.