Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 14
14 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022
Viðtal
DAM-meðferð fyrir
fólk sem glímir við
tilfinningavanda
Hrönn Stefánsdóttir og Ragnheiður Eiríksdóttir eru hjúkrunarfræðingar í DAM-teymi
göngudeildar lyndisraskana LSH Kleppi. Teymið er þverfaglegt og þjónustar fólk með
langvarandi og djúpstæðan tilfinningalegan óstöðugleika. Díalektísk atferlismeðferð
(DAM) (e. DBT – dialectical behaviour therapy) byggist á kenningum um samspil líffræði
og umhverfis. Meðferðin er fyrir fólk sem glímir við óstöðugleika í tilfinningastjórnun og
unnið er út frá einkennum í meðferðinni en ekki ákveðnum greiningum. Fólk sem nýtir sér
DAM-meðferð getur haft margvíslegar greiningar eins og til að mynda persónuleikaröskun,
áfallastreituröskun, geðhvörf tvö, átröskun, þunglyndi o.fl. Við heyrðum í Ragnheiði og Hrönn
og fengum þær til að segja okkur nánar frá DAM-meðferðarúrræðinu og teyminu.
Hvenær tók þetta sérhæfða teymi til starfa og hver var
hvatinn að því að vera með sérhæft teymi sem veitir
DAM-meðferðarþjónustu?
Hér á landi var byrjað að veita DAM-meðferð árið 2003 á
Hvítabandinu á Skólavörðustíg en upphaflega var meðferðin
þróuð í Bandaríkjunum fyrir um 30 árum síðan fyrir einstaklinga
sem voru með jaðarpersónuleikaröskun og miklar sjálfsvígs-
hugsanir og/eða sjálfsskaða. Meðferðin er gagnreynd og er
notuð víðs vegar um heiminn. Í teyminu starfa sálfræðingar,
hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi, geðlæknir og iðjuþjálfi, en fleiri
starfsstéttir koma einnig að þjónustu við skjólstæðinga. Unnið er
út frá einstaklingnum þannig að aðkoma einstakra sérfræðinga fer
eftir þörfum hvers og eins. Einstaklingar sem leita til teymisins
hafa alla jafna reynt ýmis önnur meðferðarúrræði, s.s. HAM, en
ekki náð viðunandi bata.
Hvað er DAM-meðferð?
DAM-meðferð er yfirgripsmikil geðmeðferð sem hefur það að
markmiði að auka jafnvægi fólks í daglegu lífi. Unnið er út frá
kenningu um samspil umhverfis og líffræðilegrar meðferðar.
Í kenningunni er gert ráð fyrir að til þess að vandi komi fram sé
til staðar líffræðileg viðkvæmni og óviðurkennandi umhverfi.
Lykilatriðið er þá samspil þessara tveggja þátta. Tilfinningalegur
óstöðugleiki kemur fram í röskun á stjórn á fimm þáttum:
Óstöðugleika á tilfinningum, samskiptum, sjálfsmynd, hegðun
og hugsun.
Meðferðin skiptist í fjóra færniþætti sem eru núvitund,
streituþol, tilfinningastjórnun og samskiptafærni. Færni er
kennd í hóp einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn og
mikil áhersla er lögð á heimavinnu og æfingar.
Tilfinningastjórnun kennir færni til að draga úr tilfinningalegri
viðkvæmni, læra að þekkja og bregðast við tilfinningum og
draga þannig úr tilfinningalegri þjáningu.
Streituþol fjallar um aðferðir til að þola við í óbærilegum
aðstæðum eða líðan.
Samskiptafærni snýst um sambönd við annað fólk.
Til dæmis að biðja um það sem við þurfum og setja mörk.
Núvitund er grunnurinn að allri færninni sem kennd er í
DAM-meðferð. Með þjálfun í núvitund getum við betur
gengist við aðstæðum okkar í lífinu en á sama tíma gert
breytingar til hins betra.
Hvernig er DAM-meðferð frábrugðin öðrum
meðferðarúrræðum?
HAM, hugræn atferlismeðferð, er sú geðmeðferð sem hefur helst
verið notuð fyrir þann hóp sem sækir DAM-meðferð. Munurinn
felst í því að í DAM er kennd færni til að bregðast við aðstæðum
og tilfinningum á árangursríkan hátt og núvitund er grunnstoðin í
meðferðinni allri.
Viðtal og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir