Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 36
Tilgangur rannsóknarinnar er að lýsa lífsgæðum sjúklinga
eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm á þremur tímapunktum: á
sjúkrahúsinu daginn eftir aðgerð (T1), sex vikum (T2) og
sex mánuðum (T3) eftir útskrift, með það að markmiði
að greina hvaða einkenni og bakgrunnsþættir hafa
forspárgildi við lífsgæði sjúklinganna sex vikum og sex
mánuðum eftir aðgerð.
Þetta er framsýn, lýsandi ferilrannsókn framkvæmd á
Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þýðið voru allir
þeir sem fóru í liðaskiptaaðgerð á mjöðm frá 15. janúar
til 15. júlí árið 2016. Heilsutengd lífsgæði voru metin
með mælitækinu SF-36v2. Línuleg aðhvarfsgreining var
notuð til að greina áhrifaþætti líkamlegra og andlegra
heilsutengdra lífsgæða á T2 og T3.
Meðalaldur þátttakenda (n = 101) var 66,2 ár og karlar
voru 48,5% þeirra. Á T2 voru 11 (10,9%) þátttakendur
byrjaðir að vinna og á T3 41 (40,6%). Meirihlutinn (75,2%)
var með einhvern annan sjúkdóm en þann sem leiddi
til aðgerðar og 78,2% hafði náð sér vel/mjög vel á T2
og 73,2% á T3. Algengustu einkennin á öllum þremur
tímapunktunum voru erfiðleikar með hreyfingu, verkir,
þreyta og úthaldsleysi. Heilsutengd lífsgæði jukust milli
tímapunktanna þriggja. Að vera byrjaður að vinna og að
hafa náð sér vel eftir aðgerð skýrði 47,3% af breytileika
í líkamlegu heilsufari lífsgæða á T2 og að hafa náð sér
mjög vel skýrði 52,6% breytileikans á T3. Að vera án
annarra sjúkdóma skýrði 32,4% af breytileika í andlegu
heilsufari lífsgæða á T2 og að hafa náð sér mjög vel ásamt
því að kynlíf og svefnleysi valdi ekki vanlíðan á T3 skýrði
49,2% breytileikans á T3.
Heilsutengd lífsgæði bötnuðu almennt eftir aðgerðina.
Við útskrift þurfa sérstaka athygli og fræðslu sjúklingar
með aðra sjúkdóma og þeir sem eru ekki í vinnu. Frekari
eftirfylgd skyldi leggja áherslu á sjúklinga sem sofa illa
og meta eigin bata ekki góðan
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Lífsgæði, liðskiptaaðgerðir, sjúklingar, hjúkrun, bati.
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Fyrsta íslenska rannsóknin sem
birtir niðurstöður um lífsgæði sjúklinga eftir
liðskiptaaðgerð á mjöðm.
Hagnýting: Nýta má niðurstöðurnar til að bæta
þjónustu við þennan sjúklingahóp.
Þekking: Þekking skapast um hvað hefur
áhrif á heilsutengd lífsgæði sjúklinga eftir
liðskiptaaðgerð á mjöðm. Nýta má þá
þekkingu til þess að meta hvað skal leggja
áherslu á varðandi meðferð og umönnun þessa
sjúklingahóps.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Niðurstöðurnar leggja hjúkrunarfræðingum lið í
að kortleggja þá þætti sem skipta máli varðandi
heilsutengd lífsgæði þessa sjúklingahóps og þeir
geta notað niðurstöðurnar í þróun meðferðar og
við eftirfylgni sjúklinga eftir liðskiptaaðgerð á
mjöðm.
Heilsutengd lífsgæði sjúklinga eftir
liðskiptaaðgerð á mjöðm: Lýsandi
ferilrannsókn
Ritrýnd grein | Peer review