Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Blaðsíða 53
rannsókna (sjá t.d. Karanikolos og fl. 2016; Marmot og Bell,
2009; Odone og fl. 2018) lítum við hins vegar svo á að það
sé ekki tilviljun að versnunin hafi haldist að nokkru leyti í
hendur við þann fjárhagslega samdrátt sem átti sér stað hjá
sveitarfélögum á árunum 2010-2013, heldur endurspegli
það aukið álag og óvissu sem slíkt ástand skapar innan
vinnustaðanna sem utan.
Rannsóknin sýnir að veikindi og veikindafjarvistir hjá
starfsfólki í umönnunarstörfum á öldrunarstofnunum og
sambýlum fyrir fatlaða og geðfatlaða einstaklinga jukust í
kjölfar efnahagskreppunnar 2008, einkum fyrstu árin eftir
að kreppan reið yfir landið, þrátt fyrir að dregið hafi úr
aukningunni eftir árið 2015, í takt við bætta fjárhagsstöðu
sveitarfélaganna. Engu að síður var tíðni þessara þátta hærri í
10 af 14 heilsufarsþáttum sem spurt var um árið 2019, 11 árum
eftir bankahrunið, en árið 2010 þegar fyrstu mælingar hófust.
Þetta er áhyggjuefni, því um það leyti sem heilsufarsástandið
er farið að batna á ný, samkvæmt gögnunum, þá stöndum
við mögulega frammi fyrir enn dýpri kreppu en þeirri sem
fylgdi í kjölfar efnahagshrunsins 2008, nú vegna COVID-19
heimsfaraldursins. Það er því full ástæða til að brýna
hjúkrunarfræðinga og önnur þau sem fást við hjúkrun og
starfsmannaheilsuvernd; heilbrigðisstarfsfólk, stjórnendur
og aðra sem bera ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar að vera
mjög vel vakandi gagnvart vinnutengdri líðan starfsfólks
vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem efnahagskreppan af
völdum COVID-19 faraldursins getur haft, samkvæmt þessum
niðurstöðum. Vinnutengd vellíðan er ein forsenda þess að
starfsfólk geti sinnt hjúkrun svo vel sé. Í því samhengi er
mikilvægt að skipuleggja eflingu frum- og síðforvarna til að
vinna gegn áhrifum kreppunnar á heilsu starfsfólks, ekki
einungis næstu misserin heldur einnig þegar horft er til lengri
tíma. Þótt rannsóknin hafi verið framkvæmd meðal þeirra sem
sinna umönnun íbúa á öldrunarstofnunum og sambýlum fyrir
fatlaða og geðfatlaða hjá sveitarfélögunum, lítum við svo á að
niðurstöðurnar megi heimfæra á starfsfólk sem sinnir hjúkrun
á sambærilegum stofnunum utan sveitarfélaganna og jafnvel
heilbrigðisstofnunum, þar sem ekki er alltaf um eðlisólík störf
að ræða.
LOKAORÐ