Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 36
Tilgangur rannsóknarinnar er að lýsa lífsgæðum sjúklinga eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm á þremur tímapunktum: á sjúkrahúsinu daginn eftir aðgerð (T1), sex vikum (T2) og sex mánuðum (T3) eftir útskrift, með það að markmiði að greina hvaða einkenni og bakgrunnsþættir hafa forspárgildi við lífsgæði sjúklinganna sex vikum og sex mánuðum eftir aðgerð. Þetta er framsýn, lýsandi ferilrannsókn framkvæmd á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þýðið voru allir þeir sem fóru í liðaskiptaaðgerð á mjöðm frá 15. janúar til 15. júlí árið 2016. Heilsutengd lífsgæði voru metin með mælitækinu SF-36v2. Línuleg aðhvarfsgreining var notuð til að greina áhrifaþætti líkamlegra og andlegra heilsutengdra lífsgæða á T2 og T3. Meðalaldur þátttakenda (n = 101) var 66,2 ár og karlar voru 48,5% þeirra. Á T2 voru 11 (10,9%) þátttakendur byrjaðir að vinna og á T3 41 (40,6%). Meirihlutinn (75,2%) var með einhvern annan sjúkdóm en þann sem leiddi til aðgerðar og 78,2% hafði náð sér vel/mjög vel á T2 og 73,2% á T3. Algengustu einkennin á öllum þremur tímapunktunum voru erfiðleikar með hreyfingu, verkir, þreyta og úthaldsleysi. Heilsutengd lífsgæði jukust milli tímapunktanna þriggja. Að vera byrjaður að vinna og að hafa náð sér vel eftir aðgerð skýrði 47,3% af breytileika í líkamlegu heilsufari lífsgæða á T2 og að hafa náð sér mjög vel skýrði 52,6% breytileikans á T3. Að vera án annarra sjúkdóma skýrði 32,4% af breytileika í andlegu heilsufari lífsgæða á T2 og að hafa náð sér mjög vel ásamt því að kynlíf og svefnleysi valdi ekki vanlíðan á T3 skýrði 49,2% breytileikans á T3. Heilsutengd lífsgæði bötnuðu almennt eftir aðgerðina. Við útskrift þurfa sérstaka athygli og fræðslu sjúklingar með aðra sjúkdóma og þeir sem eru ekki í vinnu. Frekari eftirfylgd skyldi leggja áherslu á sjúklinga sem sofa illa og meta eigin bata ekki góðan Tilgangur ÚTDRÁTTUR Aðferð Niðurstöður Lykilorð: Lífsgæði, liðskiptaaðgerðir, sjúklingar, hjúkrun, bati. Ályktun HAGNÝTING RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA „Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“ Nýjungar: Fyrsta íslenska rannsóknin sem birtir niðurstöður um lífsgæði sjúklinga eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Hagnýting: Nýta má niðurstöðurnar til að bæta þjónustu við þennan sjúklingahóp. Þekking: Þekking skapast um hvað hefur áhrif á heilsutengd lífsgæði sjúklinga eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Nýta má þá þekkingu til þess að meta hvað skal leggja áherslu á varðandi meðferð og umönnun þessa sjúklingahóps. Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga: Niðurstöðurnar leggja hjúkrunarfræðingum lið í að kortleggja þá þætti sem skipta máli varðandi heilsutengd lífsgæði þessa sjúklingahóps og þeir geta notað niðurstöðurnar í þróun meðferðar og við eftirfylgni sjúklinga eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm. Heilsutengd lífsgæði sjúklinga eftir liðskiptaaðgerð á mjöðm: Lýsandi ferilrannsókn Ritrýnd grein | Peer review
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.