Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 13

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 13
2. tbl. 98. árg. 2022 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 13 yfirmenn, forsendur og fleira. Annars stigs forvarnir (secondary prevention) eru þegar fólk er svo komið með einkenni og er undir streituálagi. Á einhverjum tímapunkti er gott að skoða álagspunkta bæði heima og í vinnunni. Vinnutengt álag er á ábyrgð vinnuveitands og undir þeim aðstæðum er mikilvægt að ræða við sinn yfirmann. Álagspunktarnir heima við eru flóknari og oft og tíðum ekki hægt að minnka þá, til að mynda þegar fólk á langveikt barn, stendur í skilnaði eða á veika foreldra. Forvarnir hvað varðar hluti sem viðkomandi getur ekki breytt snúa að því að fá stuðning til að takast á við aðstæður og tryggja nægjanlega hvíld. Forvarnir eru mjög einstaklingsbundnar, hvíld frá álagi er mjög einstaklingsbundin og það er engin vísindaleg aðferð sem sýnir að annað sé betra en hitt. Að fara í göngutúr eða sund, iðka núvitund eða að vinna í garðinum eru allt fínar forvarnir svo lengi sem það hentar viðkomandi. Forvarnir verða að eiga sér stað á mismunandi stigum hjá fólki; sem einstaklingar, í vinnuhópum og á vinnustað. Stigin eru öll jafnmikilvæg en hingað til höfum við aðallega verið að vinna með einstaklinginn og það þarf að bæta við forvörnum í vinnuhópnum og á vinnustaðnum án þess að fjarlægja einstaklingshlutann. Það er að segja, heilsuefling og forvarnir verða að eiga sér stað á öllum þremur stigunum. Það er oft bara rýnt í einstaklinginn hvað varðar forvarnir, til dæmis með hreyfingu og streitustjórnun en það er ekki nóg, við þurfum að horfa á alla þættina.“ Nokkur góð ráð til að fyrirbyggja kulnun Kulnun er sem sagt of mikið álag til lengri tíma sem ekki hefur verið tekist á við. „Álagið getur verið vegna aðstæðna á vinnustaðnum, í einkalífinu, heimilislífinu og í samfélaginu sem á endanum verður það til þess að viðkomandi fær einkenni sem geta orðið langvarandi. Það getur verið gífurleg þreyta, svefntruflanir og einkenni hvað varðar heilavirkni eins og t.d. minnisleysi og þessi einkenni batna ekki á ákveðnum tíma þrátt fyrir hvíld. Kulnun má ekki blanda saman við þreytu eftir mikla vinnutörn sem góður svefn og hvíld nær að laga. Streita er best skilgreind sem áreynsla eða álag sem einstaklingur mætir og hefur með sér skammtímaáhrif á lífeðlisfræðileg kerfi sem að hjálpar líkamanum til að takast á við álagið, til dæmis með hækkuðum blóðþrýstingi eða hraðari púls. Viðkomandi mætir álagi eða áreynslu með lífeðlisfræðilegri og sálfræðilegri svörun. Þegar álag er gengið yfir þá fara kerfin aftur í jafnvægi. Þannig að streita er í grunninn lífeðlisfræðilegt og sálfræðilegt ferli sem á sér stað á hverjum degi. Streita eins og hún er skilgreind í lífeðlisfræðinni er eðlilegur hluti lífsins. Það eru álagstoppar á hverjum degi sem við mætum en mikilvægast er að kerfin fari niður aftur, að það verði aftur jafnvægi. Við sjáum aftur á móti ekki miklar breytingar lífeðlisfræðilega séð hjá sjúklingum með kulnun en þörf er á meiri rannsóknum til að skýra það nánar. Aðalrannsóknarefnið okkar á ISM núna varðar einstaklinga sem eru orðnir veikir og eru í langvarandi kulnun, við erum að skoða hvort það sé eitthvað annað en kulnun sem verður að greina og veldur því að einstaklingar eru veikir svona lengi,“ segir Ingibjörg og að lokum biðjum við hana um góð ráð til að fyrirbyggja að fólk fari í kulnun. „Það er mikilvægt að tala við yfirmann sinn ef álag er of mikið á vinnustað. Taka þátt í að efla sálfræðilega vinnumhverfið á vinnustaðnum. Sjá til að fá næga hvíld frá amstrinu og minnka álagspunkta ef það er hægt. Biðja um hjálp þegar álagspunktar í einkalífi eru farnir að hafa áhrif á heilsuna er líka mikilvægt og síðast en ekki síst að hlusta á líkamann þegar einkenni streitu eru farin að láta á sér bera. Ekki bíða með að leita eftir aðstoð.“ „Eitt af fyrstu einkennum kulnunar eru svefntruflanir, þ.e. fólk fer að sofa illa, vaknar upp um miðjar nætur og getur ekki sofnað aftur. Það tekur vinnuna með sér heim og er með stöðugar áhyggjur sem það getur ekki losnað við og er kannski farið að gleyma hlutum.“ Viðtal
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.