Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Síða 20
20 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022 Laufey nærþjónusta - teymi sem veitir geðheilbrigðisþjónustu á vettvangi Hvers vegna var ákveðið að setja á laggirnar teymi sem þjónustar fólk með geð- og fíknivanda á vettvangi? „Geðþjónustan er í stöðugri framþróun, þessi hópur þarf sértæka nálgun og að okkar mati var þörf á að aðlaga kerfið betur að þessum hópi en hefur verið gert hingað til.“ Birna segir að með þróun teymisins sé komin þjónusta sem er sérstaklega sniðin að þörfum hópsins sem þiggur hana og að hún feli í sér þekkingu á fíknivanda, skaðaminnkun og geðsjúkdómum. „Það er auðveldara að mæta þessum hópi á þeirra forsendum þegar öll þessi þekking er til staðar hjá teyminu sem veitir þjónustuna,“ segir hún. Úr hvaða fagstéttum koma þeir sem tilheyra þessu nýja teymi og hvernig virkar það? „Í teyminu eru hjúkrunarfræðingar, reynslumiklir og sérhæfðir málastjórar, fíknifræðingur, læknar og félagsráðgjafar frá Reykjavíkurborg. Teymið er með samstarfssamning við borgina varðandi félagslega ráðgjöf fyrir þennan hóp sem er mikilvægt. Teymið virkar þannig að við veitum geðheilbrigðisþjónustu á vettvangi, við erum mjög sveigjanleg og reynum að mæta fólki á þeirra forsendum.“ Birna segir að meðferðarsambandið skipti miklu máli og að hópurinn sem sæki þjónustuna treysti teyminu. „Hver og einn og einstaklingur hefur með það að gera hversu mikla þjónustu hann þiggur.“ Hún segir þetta nýja teymi vinna út frá hugsjónum áhuga- hvetjandi samtals, skaðaminnkunar, batamiðaðrar hugmyndafræði og geðlæknisfræði. „Teymið var upphaflega þróað með þetta að leiðarljósi en verður stöðugt í þróun og endurskoðun til að reyna að bæta þjónustuna enn frekar. Teymið Laufey tók til starfa í október 2021 og nú eru um 30 einstaklingar í þjónustu en markmiðið er að þjónusta stærri hóp því þörfin er mikil. Samhliða stækkandi teymi viljum við líka fá fleiri fagstéttir í lið með okkur eins og til dæmis sálfræðinga sem mér finnst vanta í teymið. Það væri líka betra fyrir skjólstæðinga okkar ef það væri fast stöðugildi læknis í teyminu og einnig ef að í teyminu starfaði einstaklingur með persónulega reynslu. Notendur eru með lífsálfélagslegar þarfir og þurfa mest á heildrænni heilbrigðisþjónustu að halda. Þess vegna er mikilvægt að hjúkrun í teyminu sé sterk og samstarf hjúkrunarfræðinga og annarra sem sinna hjúkrun þessara einstaklinga afskaplega mikilvægt. Laufey er teymi sem var lítið í byrjun og mun án efa stækka með tímanum og þjónusta fleiri skjólstæðinga.“ Var þessi hópur sem teymið er að þjónusta á vettvangi ekki að sækja sér heilbrigðisþjónustu á viðeigandi stofnunum eða er álagið þar hugsanlega of mikið til að hægt sé að sinna honum? „Þetta er okkar veikasti hópur og að sjálfsögðu er pláss fyrir hann. Reynslan sýnir hins vegar að okkar veikasti hópur leitar gjarnan á bráðamóttökur en skilar sér oft illa í bókaða tíma inn á heilbrigðisstofnanir því það getur verið ákveðin hindrun að koma inn á spítalann til að sækja þjónustu. Þetta teymi var sett á laggirnar með það að markmiði að Laufey nærþjónusta er teymi í þróun á geðþjónustu LSH sem er ætlað að þjónusta fólk með alvarlegan geð- og fíknivanda á vettvangi. Við heyrðum í Birnu Óskarsdóttur, hjúkrunarfræðingi og teymisstjóra, til að forvitnast nánar um þetta nýja og mikilvæga teymi sem er nefnt eftir ömmu sem bjó í Grjótaþorpinu og var þekkt fyrir að berjast fyrir réttlæti lítilmagnans. Viðtal og myndir: Sigríður Elín Ásmundsdóttir Viðtal
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.