Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 78

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2022, Qupperneq 78
78 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 98. árg. 2022 Smokkanotkun ungra karlmanna og meiri reynslu eins og einn sagði: „Því oftar sem ég hef keypt smokka verður það bara þægilegra og þægilegra sko“. Til þess að hafa smokka aðgengilegri þá vildu unglingspiltarnir gjarnan hafa sjálfsala í skólanum sem mundi auðvelda þeim aðgengið og væri þá afgreiðslumaðurinn ekki lengur hindrun. Sumir greindu frá því að móðir þeirra hefði keypt smokka: „... þegar ég var svona 15 ára þá gaf hún mér bara smokkapakka og sagði notaðu þetta ef þú ætlar að gera það [stunda kynlíf]“. Jafnframt kom fram að það væri þægilegt að þurfa ekki að biðja móður sína að kaupa smokka. Þegar rætt var um kostnað smokka þá fannst þeim smokkar vera mjög dýrir. Einn sagði: „Smokkar eru sjúklega dýrir“. Einnig kom fram sú skoðun að kostnaður við smokkakaup væri ekki sambærilegur við að eignast barn. Í viðtalinu voru þeir spurðir hversu mikið þeir væru tilbúnir að greiða fyrir smokka. Flestir voru sammála um hvað smokkurinn mætti kosta og fannst þeim að 100 krónur fyrir hvern smokk væri vel ásættanlegt verð. Eyðileggur „momentið“ Þegar þátttakendur lýstu sjálfri smokkanotkuninni þá komu bæði fram þættir sem hvöttu og löttu notkunina. Þeir sem ekki notuðu smokka greindu meðal annars frá áhættusækni, smokkurinn væri ekki til staðar, áfengisnotkun, samskiptaleysi og þeir óttuðust að eyðileggja „momentið“. Fram kom hjá þeim að þó að þeir gerðu sér grein fyrir því að þeir væru að taka áhættu með því að nota ekki smokk þá tóku sumir samt áhættuna eins og einn orðaði það: „... maður kannski spilar lotteríið bara upp á heppnina að verða ekki fyrir einhverju ...“. Margir nefndu að þeir væru kannski ekki með smokkinn á sér þegar tækifærið gæfist eins og þessi frásögn gaf til kynna: „... maður veit kannski ekki hvenær á stað og stund þetta gerist og ef maður er ekki með smokk á sér eða eitthvað þannig þá er maður ekki endilega að hætta við til þess geta gert það seinna ...“. Fram kom hjá flestum að áfengisnotkun gat hindrað smokkanotkun. Undir þessum kringumstæðum kom fram að þeir mundu kannski ekki bregðast við ef smokkurinn rifnaði eða hann væri ekki til staðar þá væri meiri tilhneiging til að taka áhættu og sleppa smokkanotkuninni. Einnig kom fram að kyngeta þeirra gæti minnkað við áfengisneyslu og því gæti verið stressandi að setja smokkinn á við þær aðstæður: „Þau byrja kannski að nota smokk og síðan finnur hann að þetta gengur ekkert sérstaklega vel því hann er svo fullur og er ekki að finna fyrir neinu, ákveður að taka hann af“. Auk þess var nefnt að það gæti komið fyrir að fá það [fullnægingu] ekki með smokk og því gæti sú reynsla dregið úr möguleikum á smokkanotkun síðar meir. Það sem jafnframt var að gera þeim aðstæðurnar við smokkanotkunina erfiðari var að tjá sig um hana: „Ef hún segist vera á pillunni og maður segir að maður vilji nota smokkinn þá gæti það alveg verið tekið sem móðgun til hennar að halda að hún sé með kynsjúkdóm“. Það gat því reynst flókið að ræða málin en mun auðveldara að sleppa því að nota smokkinn. Þegar kom að því að setja smokkinn á þá gat viðkomandi óttast að eyðileggja „momentið“: „Svo getur það verið svolítið svona eyðileggur „momentið“ ...“. Önnur lýsing af sama toga: „Maður er byrjaður í ákafanum og svo stoppar það smástund“. Þannig verður minni hiti í leiknum. Var „momentinu“ lýst á eftirfarandi hátt: „... þú ert að ná í smokkinn, þú þarft að rífa utan af honum og þú þarft að setja hann á þig“. Önnur lýsing á „momentinu“: „Ert eitthvað þarna í myrkrinu að finna hvernig hann snýr og vandræðaleg þögn“. Annar nefndi: „Það verður dauðaþögn, skilurðu“. Til viðbótar kom fram: „... gæti tekið tíma að ná í hann, ein sekúnda ... er kannski ekki jafnlengi að líða í kannski vissum tilvikum [eins og í „momentinu“]“. Hér var í raun ein sekúnda sem heil eilífð. Því var lýst að feimni gæti skipt máli: „Ef maður er ... feiminn og þá getur það alveg verið smááskorun að taka time out og ná í smokkinn“. Að auki gat „momentið“ verið erfitt ef viðkomandi glímdi við risvandamál: „Það er kannski þessi bið ... meðan þú ert að leita að smokknum og ef þú ert með risvandamál þá kannski bara yfirgefur hann [getnaðarlimurinn] svæðið“. En það voru líka einstaklingar sem lýstu því að „momentið“ væri ekkert mál, sérstaklega ef viðkomandi þekkti manneskjuna. Hjá þeim sem voru ábyrgari í afstöðu sinni til smokkanotkunar kom meðal annars fram þetta viðhorf: „... þetta er bara eins og að vera í bílbelti í bíl, skilurðu þetta tekur enga eða litla stund að setja það á og það eru miklu minni líkur á því að þú deyir í bílslysi“. Þeir sem virtust hafa meira sjálfsöryggi fannst samræður um smokkanotkun þyrftu alls ekki að eyðileggja stemninguna. Þeir voru með alls kyns hugmyndir um það hvernig væri hægt að ræða um notkun smokka á þægilegan máta. Dæmi um það var: ,,Ef þú ert í þessum aðstæðum getur þú alltaf spurt spurninguna: á ég að ná í smokkinn?“. Sumir töldu ónauðsynlegt að ræða smokkanotkun því hún væri svo sjálfsögð. Þá gætu þeir bara náð í smokkinn án nokkurra orða. Til þess að nota smokkinn þarf margt að vera til staðar eins og að hafa greitt aðgengi að honum, ungum mönnum þarf að finnast sjálfsagt að nota hann og þeir þurfa að hafa nægjanlegt sjálfsöryggi og þekkingu til að ráða við notkun hans. Það er ljóst af niðurstöðum rannsóknarinnar að ungir karlmenn geta staðið frammi fyrir mörgum hindrunum varðandi smokkanotkun. Þessar hindranir voru í formi þekkingarleysis, neikvæðra viðhorfa, erfiðleika að nálgast smokkinn og nota hann sem bendir meðal annars til skorts á sjálfstrausti. Hins vegar voru ýmsir þættir sem hvöttu til smokkanotkunar eins og jákvæð viðhorf til smokkanotkunar, þeim finnast mikilvægt að koma í veg fyrir afleiðingar þess að nota ekki smokkinn og almennt að standa með sjálfum sér þegar á hólminn er komið. Þessi ábyrga afstaða til smokkanotkunar vísar til ákveðins vitsmuna-, tilfinninga- og félagsþroska en jafnframt að hafa byggt upp traust og trú á sjálfum sér. Letjandi þættir smokkanotkunar Ýmsar niðurstöður þessarar rýnihóparannsóknar benda til þekkingarskorts meðal unglingspilta varðandi smokka sem haft getur áhrif á notkun þeirra. Greint er frá því að smokkar séu þykkir sem gefur til kynna að ungu mennirnir hafi lítt kynnt sér eða prófað mismunandi tegundir smokka með tilliti til þykktar. Einnig nefna þeir að þá vanti betri upplýsingar um heildarnotkun smokka. Það er því ekki nægjanlegt að kenna þeim hvernig smokkurinn þarf að snúa þegar honum er rúllað á getnaðarlim því fara þarf yfir öll skref notkunarinnar. Þessi UMRÆÐA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.