Heilbrigt líf - 01.06.1941, Qupperneq 40
byltingartímanum í heimalandi sínu, sýndi fram á, að
efnaskiptin, sem fara fram í líkama dýranna, eru eins og
venjulegur bruni; svipað magn súrefnis er nauðsynlegt,
eins og þegar kol eða trje brennur, og sömuleiðis er hita-
framleiðslan tilsvarandi.
Á síðustu árum hefir tekist að gera tiltölulega einföld
áhöld til þess að mæla efnaskipti líkamans á nákvæman
hátt. Efnaskiptin eru örust á uppvaxtarárunum og í
bernsku, eða 30—40% örari en hjá fullorðnu fólki. Þeg-
ar líkaminn er fullvaxinn, komast efnaskiptin í fastar
skorður, sje um heilbrigðan líkama að ræða, og hald-
ast þannig lengi án verulegra breytinga. Líkamsþung-
inn er þá nálega hinn sami ár frá ári. En það er eigi fá-
títt, að fólk verði fyrir því, jafnvel á ungra aldri, að fitna
og þyngjast um skör fram, og veldur það margri konunni
hugarangurs, þar sem tískukonan vill vera grönn.
En hvað er þá offita? Líkamsþunginn er háður aldri,
kyni og líkamshæð manna. Ýtarlegar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar í þessu efni, og hafa menn þannig komist að
raun um, hver væri hin æskilega meðalþyngd.
Setja má fram sem almenna reglu, að meðalþyngd
fullorðins manns eigi að vera hjerumbil jafnmörg kíló-
grömm og hann er margir sentimetrar yfir metra á
hæð. Meðalþyngd manns, sem er 170 sentimetrar, á því
að vera 70 kg. Það skal þó tekið fram, að þessi regla
er hvergi nærri nákvæm og getur skeikað um 10% til eða
frá, án þess að nokkuð geti talist athugavert við þyngd-
ina, og reglan á alls ekki við um börn eða unglinga. Hins-
vegar er þetta regla, sem auðvelt er að muna, og getur
hun verið almenningi góður stuðningur.
Verði líkamsþunginn verulega meiri en þetta, er offitan
farin að láta bæra á sjer, og skal nú nokkuð vikið að or-
sökum hennar og afleiðingum, en að lokum drepið á, hversu
helst sje hægt að forðast hana.
38
Heilbrigt líf