Heilbrigt líf - 01.12.1950, Qupperneq 20
Fávitarnir eru þeir sjúklingar, sem mest eru vanræktir
af öllum sjúklingum þessa lands. Nokkuð hefur þó verið
gert í fávitamálum, samþykkt hafa verið lög á Alþingi
um byggingu fávitahælis, hæli fyrir nokkra fávita er rekið
á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði, við örðugar aðstæður.
Einnig mætti nefna, að verið er nú að byggja hæli í
Kópavogi fyrir nokkra fávita, en þótt þetta hæli verði
starfrækt, mun samt vanta hæli fyrir meiri hluta þeirra
fávita, sem þurfa á hælisvist að halda.
Nokkrir menn og konur hafa unnið og barizt fyrir
málum fávitanna, en sá íslendingurinn, sem mest og bezt
hefur veitt málefni þessu liðsinni, var frú Guðrún heitin
Lárusdóttir, og væri fávitamálum vorum eflaust betur
skipað, ef þeirrar góðu og gáfuðu konu hefði notið leng-
ur við.
Fávitaháttur (oligophrenia, eins og það heitir á lækna-
máli) er sálrænn vanþroski eða gáfnabrestur. Orsakirnar
eru misvöxtur eða vanþroski heilans eða skemmdir á heil-
anum. Ýmist er þetta meðfætt eða áunnið á unga aldri.
Gáfnabresturinn er höfuðeinkenni fávitaháttai'ins, en
auk hans eru önnur sjúkleg einkenni, sem móta alla skap-
höfn fávitans.
Fávitaháttur og geðsjúkdómar eru óskyldir, en geta þó
átt samleið. Má þar til nefna arfgenga geðsjúkdóma, svo
sem hugklofa og hringhugasýki (Maniodepressiv psykosa).
Gerist þetta með þeim hætti, að í ætt fávitanna eru geð-
sjúkdómar, og erfa fávitarnir þá.
Fávitaháttur er allalgengt fyrirbæri og meira að segja
fávitaháttur á háu stigi. Misháar tölur eru nefndar í því
sambandi, en til fróðleiks má geta þess, að í Danmörku
er talið, að af öllum landslýð séu örvitar og hálfvitar
hálfur af hundraði eða fleiri. Nákvæmar skýrslur hér á
landi eru ekki til, en ástæðulaust er að halda, að órann-
sökuðu máli, að öðruvísi sé ástatt hér. Sennilegt er, að
114
Heilbrigt líf