Heilbrigt líf - 01.12.1950, Side 32

Heilbrigt líf - 01.12.1950, Side 32
Ekki er fátítt, að fávitar gerist brotlegir við landslög, en tölur um þetta eru mjög misháar. Hinn þekkti danski geðveikralæknir, Wimmer, athugaði 1212 afbrotamenn og konur, og af þeim reyndust 366 fávitar, þ. e. 30,2 af hundraði. Aschoffenborg (þýzkur læknir) rannsakaði 200 menn, sem framið höfðu kynferðisafbrot. Af þeim voru 36,5 af hundraði fávitar eða treggáfaðir. Danskur læknir, Kemp, athugaði fjölda vændiskvenna, og voru 27 af hundraði hverju fávitar. Próf. Melveg, þekktur danskur geðveikralæknir, telur, að af öllum afbrotamönnum í Danmörku sé fjórði hlut- inn annaðhvort fávitar eða að greind þeirra sé undir meðallagi. Hvernig ástatt er hér á landi, er órannsakað mál, en gera má ráð fyrir, að eins sé ástatt hjá okkur í þessum efnum, að minnsta kosti ekki betur, þar sem okkur vantar fávitahæli, en þau hafa bjargað mörgum fávit- anum frá lögbrotum. Örvitar og hinir verr gefnu hálfvitar fremja sjaldnast afbrot, og er það að vonum, þar sem þeir eru svo mjög ósjálfbjarga, bæði andlega og líkamlega. Öðru máli gegnir um hina betur gefnu hálfvita, sem hafa oftast lítt tak- markað athafnafrelsi. Vanvitarnir breytast oft mikið á gelgjuskeiðinu, eins og áður hefur verið að vikið, hjá þeim gerast nú skapgerðarbreytingar. Ber oft á skap- gerðarbrestum, sem áður höfðu ekki gert vart við sig, auk þess verða þeir vanstilltir og æstir. Gelgjuskeið fávit- anna er lengra en hjá öðru fólki, og nær það oft til tvítugs. Þetta tímabil í ævi fávitanna er því hættuskeið. Fyrstu afbrot þeirra byrja á þessu skeiði, og er því áríðandi, að þeim sé komið á hæli, strax og þeir gerast brotlegir. Reynslan hefur sannað, að hegning og hegningarhúsvist skaðar þá aðeins. Þeir gerast brotlegir aftur, um leið og þeim er sleppt úr hegningarhúsvistinni. Afbrotin verða að vana hjá þeim. Sé tekið í taumana strax, og þeim komið 126 Heilbrigt líf
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Heilbrigt líf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.