Heilbrigt líf - 01.12.1950, Síða 54
á milli út- og innsnúnings. Undir hnésbætur sé lagður
púði, þannig að sjúklingur liggi krepptur í hnjáliðum,
sem svarar 10—15 gráðum. Þó verður að hafa í huga, að
beygjuherpingur getur hæglega myndazt, ef aðallærvöðv-
inn er lamaður eða veiklaðri en beygjendur á læri.
Undir iljar þarf að leggja plötu eða flatan púða til þess
að halda fótunum í 90 gráðu stöðu í öklalið. Slíkt hindrar
einna helzt myndun tá-fótar (með lyftum hæl).
Sé grunur um lamanir í kálfavöðvum, er búið um fót-
inn í 10 gráðu beygingu aftur á við. Þannig linar á vöðv-
um aftan á fótlegg og þeir hvílast betur, er tog þeirra
minnkar. Þar með eru meiri líkur til að vöðvi, sem hefur
lamazt, nái sér betur en annars hefði mátt búast við, ef
fyrrnefndur umbúnaður hefði ekki verið notaður.
Þessir sjúklingar þurfa iðulega að nota spelkur á meðan
þeir bíða betri umbúða. Umbúðirnar verða að vera við
hæfi sjúklingsins, þ. e. a. s. þær mega ekki á neinn hátt
særa eða þrengja að líkamanum, svo að ekki hljótist af
þeim blóðrásartruflun. Þær skulu einnig vera eins léttar
og unnt er, svo að þær þvingi sjúklinginn sem minnst.
Hingað til hefur það verið miklum erfiðleikum bundið að
finna létt, en jafnframt nógu traust efni.
Blóðrás er að jafnaði mjög treg í lömuðum vöðva.
Meðal annars vegna þess gengur oft erfiðlega að auka
þrótt hins lamaða vöðva að nýju. Það er því talið hyggi-
legt að taka umbúðirnar af sjúklingnum við og við og
láta þann líkamshluta, sem lamazt hefur, hvíla án um-
búða á sléttu undirlagi, studdan sandpokum eða púðum,
ef við þarf, svo að ekki reyni um of á vöðvana eða þeir
togni.
Sjálfsagt er um leið og umbúðirnar eru teknar af sjúk-
lingnum að láta hann gera auðveldar æfingar. Slíkt verður
þó að gera mjög gætilega, undir nákvæmu eftirliti og að-
stoða sjúklinginn eftir þörfum.
148
Heilbrigt líf