Úrval - 01.06.1949, Qupperneq 17
1 GREIPUM FOSSINS
15
að aðeins ein skýring var eftir
á hvarfi Dorothy: hún hafði
festst undir fossinum og drukkn-
að þar.
Samt héldu sumir félaganna
áfram að kafa, meðan aðrir óku
til næsta smáþorps til að hringja
eftir lögreglunni. Tveim tímum
síðar kom lögreglumaður ásamt
lækni og líkmanni og 20 skógar-
höggsmönnum.
Þeir fóru strax að leita fyrir
sér með töngum á löngum bamb-
usstöngum. Allt í einu fannst
einum þeirra töngin krækjast í
eitthvað. Hann leitaði afturfyrir
sér á sama stað, og í þetta skipti
kom hann upp með tætlu af ljós-
rauðum silkidúk; það var rifr-
ildi úr sundbol Dorothy.
Lík Dorothy var þá þarna
niðri, þar sem fall fossins var
mest. Ekki var nein von til þess
að hægt væri að ná henni upp
á móti fallþunga vatnsins, og
þess vegna var ákveðið að
breyta framrás árinnar með
nokkurri fyrirhleðslu. Það var
orðið áliðið dags og tekið að
skyggja, og ekkert hefði verið
eðlilegra en að beðið hefði verið
með þessa fyrirhleðslu til morg-
uns, en þeir hófu þegar viðbún-
að af þeirri þrautseigju, sem ein-
kennir ameríska fjallaþorpsbúa,
og ákváðu að hætta ekki meðan
nokkur von væri eftir.
Það var ekið í ofboði til borg-
arinnar eftir kartöflupokum og
skóflum, og síðan var byrjað að
hlaða stífluna með sandpokum
og grjóti. Stíflan lengdist jafnt
og þétt, og það tók að draga úr
vatnsmagni fossins og hylurinn
undir honum varð gagnsærri.
Allt í einu sá Chick Whit-
comb mannshönd berast fram
og aftur í hringiðu hylsins. Hann
reyndi að ná í höndina með töng-
inni, en tókst ekki, og bað hann
þá um stöng með lykkju á end-
anum. Einhvern veginn tókst
honum að bregða lykkjunni ut-
an um úlnliðinn, herða að henni
og draga þessa draugahönd upp
undir yfirborðið. Svo teygði
hann sig niður í hylinn, en fé-
lagar hans héldu í fætur hans,
og hann náði í höndina. Undr-
un hans verður ekki með orð-
um lýst, þegar hann fann kalda
fingur lokast um úlnlið sinn og
kreista fast!
O
Hvað hafði komið fyrir Doro-
thy Sparks?
Þegar hún sást síðast, hafði
hún verið að búa sig undir að
stikla á staksteinum yfir ána
rétt ofan við efri fossinn. í miðri