Úrval - 01.06.1949, Síða 19
I GREIPUM FOSSINS
17
ina. Þá opnaði Dorothy augun,
varir hennar opnuðust í daufu
brosi um leið og hún vafði báð-
um örmum um háls skógar-
höggsmannsins, sem ekki vissi,
hvað hann átti að halda.
í sjúkrabílnum á leiðinni heim
sagði hann við hana: „Þetta er
í fyrsta skipti, sem lík hefur
faðmað mig, — mér lá við yfir-
liði og ég var nærri búinn að
missa yður!“
Duttlungar tölunnar 9.
Það er sagt, að talan 7 sé heilög' tala og kann svo að vera,
en talan 9 er vissulega miklu leyndardómsfyllri; hún er svo
leyndardómsfull, að það er næstum óhugnanlegt.
Ef við athugum nánar hátterni hennar, muntu sannfærast
um orð mín. Það er sama hve oft talan 9 er lögð við sjálfa
sig, hin endanlega þversumma af útkomunni verður alltaf 9.
Dæmi: 9 + 9 = 18; 1 + 8 = 9. Ef maður leggur 9 við sjálfa sig
256 sinnum, verður útkoman 2304, og þversumman af því er
einnig 9. Ef við leggjum 9 við sjálfa sig 2708413 sinnum, verður
útkoman 24375717, sem hefur þversummuna 36, sem aftur hef-
ur þversummuna 9. Það er sama hve oft þetta er gert, endan-
lega þversumman verður alltaf 9.
Þegar þú ert orðinn sannfærður um, að þetta sé rétt, skulum
við athuga hinn furðulega hæfileika tölunnar 9 til að hverfa.
Leggðu einhverja tölu, sama hvaða tölu, við 9 eða 99 eða 999
o. s. frv. og þá hverfur talan 9 samstundis, en þú situr eftir
með töluna, sem þú hafðir í upphafi. Tökum dæmi: 9 + 1 = 10,
og þversumman að 10 er 1, sama talan og við byrjuðum með.
Annað dæmi: 7+9 = 16; þversumman 7. Þriðja dæmi: 2117456
hefur þversummuna 26. Ef við leggjum 9999 við, fáum við
2127455, sem einnig hefur þversummuna 26. 1 öllum dæmunum
hverfur talan 9, og útkoman hefur sömu þversummu og upphaf-
lega talan.
Æfðir reikningsmenn nota þenna eiginleika tölunnar 9 til að
prófa samlagningu langra dálka. Þeir leggja saman dálkana,
fyrst eins og þeir koma fyrir, og síðan með því að hlaupa alls-
staðar yfir töluna 9. Ef þversumma heggja útkomanna verður
sú sama, þá er samlagningin rétt.
Hvaða margfeldi sem er af tölunni 9 hefur endanlega þver-
summu 9. Dæmi: 2148X999 = 2145852, sem hefur þversumm-
una 27, og 2 + 7 er sama sem — já, því viltu kannski fá að
svara sjálfur. — Collier’s.
3