Úrval - 01.06.1949, Side 22
20
ÚRVAL
uð leið til að lækna marga sjúk-
dóma með einni penicillininn-
spýtingu, þar á meðal lekanda.*
Lyfjaverksmiðjurnar ala hjá
sér sveppa- og bakteríutegundir
svo hundruðum skiptir, bæði til
að leita að nýjum lyf jum og til
að fá sem bezt og arðbærust af-
brigði af hverri tegund. Ein-
stökum afbrigðum, — t. d. af
sveppnum, sem framleiðir strep-
tomycin — hættir til að úrkynj-
ast, þ. e. hæfileiki þeirra til að
framleiða streptomycin dvín. Ef
lyfjaverksmiðjurnar gera ekki
ráðstafanir til að hafa við hönd-
ina ný afbrigði jafnóðum og þau,
sem í notkun eru, úrkynjast, þá
er voðinn vís. Þessi afbrigði eru
jafnvel betur stunduð en barn,
som fæðist löngu fyrir tímann,
og meiri áherzla lögð á ræktun
þeirra en kynbótaræktun veð-
hlaupahesta. Ástæðan er aug-
Ijós: verulega gott afbrigði af
Penicillum chrysogenum getur
verið margra miljóna virði.
Fyrsta afbrigðið af sveppnum,
sem Sir Alexander Fleming í
Englandi fann, gaf af sér tvær
* Sjá greinina „Vísindalegt yfirlit
ársins 1948“ í síðasta hefti Úrvals.
einingar af penicillini úr hverj-
um rúmsentímetra af súpu, en
afbrigði, sem nú eru notuð, gefa
af sér allt að 900 einingar úr
sama magni!
Stórframleiðsla á penicillini
fer nú fram á eftirfarandi hátt:
Þegar hinir hreinræktuðu svepp-
ir, sem getið er um í upphafi
greinarinnar, hafa verið tilreidd-
ir, eru þeir settir í ræktun, fyrst
í þriggja lítra flöskum, og síð-
an í 800 lítra ræktunarkerum.
Svo er súpan sett í geysistór
gerjunarker, sem eru full af
sveppafóðri (blanda af maís-
gerjunarvökva, mjólkursykri og
steinefnum). Þar eru svepparnir
látnir vaxa í tvo daga og gefa
frá sér penicillin út í súpuna.
í stórri lyfjaverksmiðju
standa þessi stóru ker í röðum
og framleiðslan heldur áfram án
afláts nótt og dag, en penicillin-
ið, sem úr kerunum kemur, er
ekki nema rétt eins og dreytill
úr lekum eldhúskrana — fjög-
ur grömm úr hverjum tíu lítrum
af ,,súpu“. En þó að dreytillinn
sé ekki mikill, bíður hans það
mikilvæga hlutverk, að bjarga
þúsundum mannslífa úr greipum
banvænna sýkla.