Úrval - 01.06.1949, Side 24
22
ÚRVAL,
tóku upp mat sinn og hófu að
matreiða kvöldverð sinn. Ef
þetta hefði skeð í Englandi,
mundi ferðin, sem eftir var, hafa
orðið næsta óskemmtileg, þögul
og þumbaraleg. En Kinglake
komst að raun um, að í Austur-
löndum varð þetta einungis til
þess að gera ferðina skemmti-
legri. „Það er engu meiri ástæða
til að varast Austurlandabúa
eftir svona atvik," segir hann,
,,en að varast hest, sem reynt
hefur árangurslaust að kasta
manni af baki. Arabarnir urðu
mér einmitt geðþekkari eftir
þessa aumu tilraun þeirra til að
gabba mig, og álit þeirra og að-
dáun á mér óx um allan helm-
ing við það, að ég skyldi sjá
þannig við þeim.“
Það sem enskur maður dáir
einkum í fari Araba er sá eigin-
leiki þeirra að kunna ekki að
skammast sín. Eg segi þetta
ekki í niðrandi merkingu — ég
á við, að þeim virtist standa á
sama um, hvað Kinglake hugs-
aði um þá, að þegar ráðvendni
þeirra varð fyrir þungu áfalli,
sýndu þeir, að í þeim bjó sú
heiðríkja og rósemi hugans, sem
við Englendingar höfum löngu
glatað — ef við höfum þá nokk-
urn tíma átt hana. Það má ef til
vill segja, að þeir hafi lifað svo
aumu sultarlífi, að þeir hafi ekki
haft ráð á að sýna viðkvæmni
í siðferðilegum efnum. En mál-
ið er ekki svo einfalt. Kinglake
komst að raun um, að þessir
Arabar héldu óskertum virðu-
leik sínum og kímnigáfu, kurt-
eisi þeirra gat verið konungleg
og tillitssemi þeirra fögur og
hugmyndarík. Þegar Kinglake
hafði reist tjald sitt kvöld eitt
nokkrum dögum seinna, hélt
einn Arabinn af stað út á eyði-
mörkina í vesturátt, án þess
að segja hvert hann ætlaði.
Kinglake vissi það ekki, en Ar-
abinn ætlaði að sýna honum, að
þeir væru brátt komnir á á-
fangastað; nokkru síðar kom
hann aftur og til sannindamerk-
is hélt hann á rísaxi, fullþrosk-
uðu, fersku og grænu.
Kinglake fór yfir Sínaíeyði-
mörkina árið 1835. Mið-Austur-
lönd hafa breytzt mikið síðan,
en skapgerð fólksins er að
mestu hin sama. Ef hann gæti
farið ferð sína aftur núna,
mundi hann þekkja aftur fólkið
og vita hvernig hann ætti að
koma fram við það. Tökum sem
dæmi mjólkursöludrengina í
Kaíró. Þeir taka ekki nærri sér
að hlaupa með mjólkurker upp