Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 33
RAKETTUFLUG ÚT 1 GEIMINN
31
fjarstýrt, en síðan mannstýrt.
Flest grundvallaratriðin eru þeg-
ar kunn, einnig margar hættur,
sem þarf að yfirstíga; og allt
efni, sem til þarf, er fyrir hendi.
það er auðvelt að ímynda sér
hverja þýðingu slík geimstöð
gæti haft í ófriði, en það verður
ekki rætt hér. Hitt er engu síður
ljóst, að vísindunum yrði ómet-
anlegur styrkur að henni. Hún
svífur hljóðlaust, laus við allan
þunga, í því sem vísindin kalla
,,frjálsu falli“. Sólin skín á hana
af öllum mætti sínum, því að
ekkert gufuhvolf er til að draga
úr því, en í skugganum er hel-
kuldi. Skilyrði fyrir stjörnufræð-
inga til athugana um borð í
slíkri stöð yrðu ómetanleg. Ekk-
e*t gufuhvolf væri til að draga
móðu fyrir útsýni þeirra, allar
stjörnur himinsins myndu blasa
við þeim á biksvörtum himni.
Sjónvarp um borð í stöðinni
gæti með endurvarpi náð til
hálfrar jarðarinnar.
En geimstöðin yrði skrítinn
dvalarstaður fyrir áhöfnina,
sem vön er áhrifum aðdráttar-
aflsins á jörðina. Ekkert innan
veggja hennar mundi hafa
þunga. Enginn gæti dottið eða
misst neitt. Óþarfi yrði að leggja
frá sér verkfæri, sem væri ver-
ið að vinna með, nóg að sleppa
þeim og þau yrðu kyrr í lausu
lofti. Ekki yrði heldur hægt að
detta út úr stöðinni, jafnvel þó
að stigið væri út fyrir hana. Sá
hinn sami mundi aðeins svífa 1
lausu lofti. Vegna ófyrirsjáan-
legra áhrifa á mannslíkamann,
kann að reynast nauðsynlegt að
framkalla aðdráttarafl í stöðinni
með því að láta hana snúast um
sjálfa sig á ferð sinni umhverfis
jörðina, og ráðstafanir hafa
þegar verið gerðar til lausnar á
því vandamáli.
Eftir að stöðin er byrjuð að
fara braut sína umhverfis jörð-
ina, væri hægt að stækka hana
eftir þörfum, rétt eins og hverja
aðra byggingu á jörðinni, nema
að smiðirnir yrðu auðvitað að
vera í loftþéttum klæðnaði, fyllt-
um með lofti við hæfilegan
þrýsting og tryggilegan umbún-
að yrði að hafa til þess að inn-
og útganga í stöðina gæti farið
fram án þess að loft tapaðist.
Með núverandi eldsneyti yrðu
birgðaflutningarakettur senni-
lega að vega um 70 lestir fyrir
hverja lest, sem þær flyttu af
byggingarefni, matvælum og
öðrum nauðsynjum handa áhöfn
stöðvarinnar. En sennilega á
kjarnorkan eftir að breyta þeim