Úrval - 01.06.1949, Blaðsíða 34
32
■tfRVAL
hlutföllum stórlega. Birgða-
flutningaraketta myndi fljúga
út í geiminn unz hún kæmi á
braut stöðvarinnar, síðan myndi
hún auka eða minnka hraðann,
unz hún hefði náð stöðinni og
leggjast að henni eins og skip,
sem leggjast hlið við hlið úti
á rúmsjó.
Þannig er þá áætlunin um
geimstöðina, sem ef til vill verð-
ur að veruleika fyrr en varir.
Ef til vill á það fyrir okkur að
liggja, að koma inn í eitthvert
flugmálaráðuneyti og sjá þar
einhvern flugmálastjóra renna
fingri eftir nafnalista flug-
manna, sem bíða þess að leysa
af félaga sína. Hann merkir við
nöfnin með penna sínum og fer
síðan út að borða miðdegisverð.
•— Og nokkrum dögum síðar er
sonarsonur minn eða þinn sezt-
ur við stjórnvölinn í einu geim-
fari ríkisins í þúsund km fjar-
lægð — frá jörðu.
CVD ★ CSD
Mistök.
Ungur sjómaður ætlaði að senda kærustunni sinni afmælis-
gjöf. Hann fór inn I búð og keypti mjúkar og fallegar skinn-
lúffur, sem hann bað afgreiðslustúlkuna að senda til kærust-
unnar. Af misgáningi sendi afgreiðslustúlkan kvenbuxur. Án
þess að vita um þessi mistök skrifaði sjómaðurinn kærustunr.i
svolátandi bréf:
Elskan mín!
Ég sendi þér þessa litlu gjöf til þess að þú sjáir að ég man
eftir afmælisdeginum þínum, þó að ég sé að heiman. Ég vona
að það komi sér vel fyrir þig að fá þær; þær eru hlýjar núna
í kuldanum, og auðvelt að fara úr þeim og í þær. Eg var í
vandræðum að velja hentugan lit, en afgreiðslustúlkan sýndi mér
einar, sem hún var búin að nota í þrjár vikur, og það sá varla á
þeim. Ég vissi heldur ekki hvaða númer þú notar — þó að það
stæði mér auðvitað næst að vita það — en afgreiðslustúlkan
var á stærð við þig, og ég fékk hana til að máta þær, og þær
pössuðu henni alveg. Hún sagði, að þú skyldir blása inn í þær,
þegar þú hefur notað þær, því að þeim hætti oft til að verða
rakar að innan við notkun. Mundu mig um að nota þær í kuld-
anum, elskan mín. Þjnn elskandi Anton,
— A. S. í „Verden IDAG".