Úrval - 01.06.1949, Síða 49
WILLIAM PRÆNDI
47
Þegar William frændi hafði
lokið hringferð sinni og fullviss-
að sig um, að allt væri með
felldu í ríki sínu, ók hann heim
á leið í skrautvagninum. Hús
Williams frænda var gamalt og
óskipulegt, með ótal dyrum og
stigum. Á veggjunum héngu sig-
urmerki hans —■ villimannaspjót
frá Afríku, boomerang frá Ást-
ralíu, tyrknesk sverð, blökku-
mannagrímur, dýrahöfuð — sem
Öll áttu sína sögu. Aðeins eitt
herbergi í húsinu fengum við
börnin ekki að koma inn í —
það var bókasafnið.
Það var í því herbergi, á átj-
ánda afmælisdaginn minn, sem
ég komst að leyndarmáli Willi-
ams frænda. Hann var úti við,
Wing var önnum kafinn í eld-
húsinu og hurðin að bókasafn-
inu stóð í hálfa gátt. Ég stóðst
ekki mátið og laumaðist inn.
Þetta var stórt herbergi og vegg-
irnir frá gólfi til lofts þaktir
bókum og spjaldskrárkössum,
allt flokkað og niðurraðað: Af-
ríka, Kína, Tíbet, Lyf úr jurt-
um, Glæpir o. s. frv. Á skrifborð-
inu lágu nokkrar bækur og
minnisblað, skrifað á með hönd
Williams frænda. Hann var ber-
sýnilega að kynna sér villidýra-
veiðar. Ég var svo niðursokk-
in í bókunum og því, sem
frændi hafði skrifað, að ég gætti
mín ekki fyrr en ég heyrði fóta-
tak hans í forstofunni. Ég klifr-
aði í ofboði út um opinn glugga,
gekk að aðaldyrunum og sagð-
ist hafa verið að svipast um í
garðinum. William frændi ósk-
aði mér til hamingju af hinni
hirðmannlegu kurteisi sinni og
gaf mér hring, sem hann hafði
keypt í Japan.
Laugardagurinn næsti á eftir
var einn af skelfilegustu dögum
lífs míns. Þann dag hélt William
frændi fyrirlestur um villidýra-
veiðar í fræðsluklúbb frú Hol-
lander. Undir fyrirlestrinum
varð mér skyndilega ljóst, að
hann var að segja sögu, sem ég
hafði lesið í einni bókinni á skrif-
borðinu hans — segja hana sem
sögu af sjálfum sér. Á eftir
komu aðrar sögur, sem ég kann-
aðist við. Ég var sem í leiðslu
á leiðinni heim, læddist upp í her-
bergið mitt og grét í laumi.
f ungæðislegri reiði ákvað ég
að njósna um William frænda^
og ljóstra síðan upp öllu sam-
an, þegar ég hefði fengið nægar
sannanir. Mér tókst að fá ýms-
ar upplýsingar hjá nánum vin-
um hans og skrifaði þær í sér-
staka bók. Þegar ég heimsótti