Úrval - 01.06.1949, Side 53
ORSAKIR OFDRYKKJU
51
er einnig hægt að færa gegn
þessari kenningu: af tvíburum
verður annar ofdrykkjumaður
en hinn reglumaður. Samt hafa
þeir lifað í sama umhverfi; og
loks eru miklu fleiri karlmenn
en konur ofdrykkjumenn — og
eiga þær þó vissulega við eins
mörg og erfið félagsleg vanda-
mál að stríða og karlmenn.
En þeir sem hallast að hinni
„sálrænu" skýringu, halda því
samt fram, að þótt hægt sé að
benda á ýms svona dæmi, sé
reynslan sú, að venjulega megi
rekja ofdrykkju til sálrænna
erfiðleika.
Nú hafa hinsvegar komið fram
ný og merkileg atriði í þessu
máli. Dr. Roger J. Williams,
forstjóri lífefnafræðideildar há-
skólans í Texas í Bandaríkj-
unum, hefur verið að gera at-
huganir á sambandinu milli
áfengis og efnaskipta (meta-
bolism) líkamans. 1 ritgerð í
Quarterly Journal of Studies
on Alcohol lætur hann í ljós
þá skoðun, að ofdrykkja kunni
í mörgum tilfellum að eiga rót
sína að rekja til „meðfæddrar
skekkju í efnaskiptum líkam-
ans“. Með öðrum orðum:
drykkjumaðurinn er ekki að
reyna að drekkja erfiðleikum
sínum í áfengi, heldur eru efna-
skiptin í líkama hans óheilbrigð
líkt og á sér stað um sykur-
sýkissjúkling. Hann getur ekki
ráðið við áfengið frekar en
sykursýkissjúklingurinn getur
ráðið við sykurinn.
Ef skoðanir dr. Williams eru
réttar, verður ef til vill hægt
að uppgötva þessa veilu í mönn-
um áöur en þeir verða að of-
drykkjumönnum. Einnig má
gera sér vonir um, að núverandi
aðferðir við lækningu á of-
drykkju — sem allar eru fyrst
og fremst sálræns eðlis — megi
betrumbæta með líkamlegum
aðgerðum, þannig að bata-
möguleikarnir verði drjúgum
meiri en þau 25-40%, sem þeir
eru nú.
Ef við viljum skilja samband-
ið á milli áfengis og efnaskipta,
verðum við að gera okkur grein
fyrir þeirri staðreynd, að efna-
skiptin eru einstaklingsbundin.
Við erfum hvert um sig mynd-
unarkerfi efnakljúfa (enzyma),
sem í megindráttum er hið sama
og hjá foreldrum okkar, en í
einstökum smáatriðum jafn-
einstaklingsbundið og fingra-
för. Engir tveir líkamar hafa
eins efnaskiptakerfi: Þessvegna
er t. d. svo margvísleg lykt af