Úrval - 01.06.1949, Page 55
ORSAKIR OFDRYKKJU
53
ig tækifærisdrykkjumönnum,
og gerir oft vart við sig eftir
tiltölulega litla áfengisneyzlu.
Hún lýsir sér t. d. í því, að mað-
ur sem fengið hefur aðeins einn
eða tvo „sjússa“, verður skyndi-
lega örvita, lemur fólk, fremur
þjófnað, nauðgun, jafnvel morð,
fellur síðan í langan svefn og
man svo ekkert af því, sem
skeði þegar hann vaknar.
Atvik, sem kom fyrir í New
York fyrir skömmu, er gott
dæmi um sjúklega ölvun. Far-
þegi í neðanjarðarlest dró
skyndilega upp hníf, otaði hon-
um að farþegunum og rak þá
alla út úr vagninum og risti
síðan áklæðið í vagninum í
tætlur. Þegar hann vaknaði á
lögreglustöðinni, mundi hann
ekkert af því sem skeð hafði.
Oft eru þessir menn prúð-
menni og stillingarmenni ó-
drukknir. Úr bréfum greinar-
höfundar skulu hér tekin työ
dæmi:
Elzti sonur minn er mjög
drykkfelldur. Hann er i alla
staði fyrirmyndarmaður, þegar
hann er ekki undir áhrifum á-
fengis og . . . er nú þrítugur,
velgiftur og á sjö ára stjúpson.
En hann er eins og vitfirringur,
þegar hann er drukkinn, sem oft
kemur fyrir. Hann er einnig
hættulegur ástvinum sínum, sem
hann hefur gert tilraunir til
að meiða. Hann hefur jafn-
vel sýnt þeim banatilræði. Hann
er rakari að iðn, góður maður,
sem á marga vini, þegar hann
er ódrukkinn . . .
f öðru bréfi skrifar stúlka um
vin sinn:
Áfengi hefur þannig áhrif á
hann, að eftir þrjú glös verður
hann háðskuh, þrætugjarn og
þr józkur. Ef tir að hann hef ur f eng-
ið fjögurglös hættir hann að gera
sér grein fyrir, hve mikið hann
drekkur og segir ýmislegt, sem
hann man ekki á eftir. Hann
mundi berja hvern þann, sem
reyndi að koma í veg fyrir
að hann héldi áfram að drekka
eftir að hann er kominn á þetta
stig. Hann verður loðmæltur,
hugsar og talar óskýrt, augun
verða starandi og göngulagið
reikult. Að sjá hann daginn
eftir allsgáðan, er eins og að
sjá allt annan mann. Hann er
broshýr og prúðmannlegur og
nýtur mikillar hylli vina sinna
. . . þeir loka augunum fyrir
ágöllum hans þegar hann er
drukkinn, því að þeir vita, að
hann er öðruvísi, þegar hann er
ódrukkinn ...
Svona fyrirbrigði, segir dr.
Williams, eru sambærileg við
einstaklingsbundin áhrif lyfja,
og eiga sér líklega sömu lífefna-
fræðilegu orsök. Sérkenni sjúk-