Úrval - 01.06.1949, Page 58
56
ÚRVAL
Hið síðara er frá verkfræð-
ingi, sem vann við áætiun að
tilbúningi kjarnorkusprengj-
unnar:
Ég hef alltaf verið við góða
heilsu og haft góðar tekjur og
er ekki í fjárhagsvandræðum
núna, en ég er hræddur við að
fara af spítalanum til að vinna
í einhverri annarri borg eins og
mér hefur verið ráðlagt, því að
ég veit af gamalli reynslu,
hvernig fara muni — verkfræð-
ingar eru drykkfelldir hvar sem
er í heiminum . . .
ÞaS hafa liðið allt frá sex
mánuðum upp í fjögur ár án
þess ég bragðaði áfengi, en
endalokin hafa alltaf orðið oin
sömu — eitt glas í ógáti og
næsti áfangi er spítalinn og
svefnlyf . . .
Með þessu er ekki sagt, að
veruleikaílóttinn, vanmeta-
kenndin, og refsigirnin —
hinar sálfræðilegu hliðar —
séu ekki mikilvægar. Það eru
þær. Jafnvel maður með efna-
skiptakerfi, sem ræður ekki
við áfengi, verður ekki of-
drykkjumaður nema aðstæður
og umhverfi eða aðrar kringum-
stæður ýti honum út 1 það.
Hitt er aftur á móti víst, að
hversu mjög sem maður kann
að vera knúinn til veruleika-
flótta o. s. frv. með áfengis-
drykkju, mun viðleitni hans
ekki bera árangur, nema efna-
skipti hans séu af réttu tagi.
Hinar sálfræðilegu orsakir
yfirskyggja ekki eins mikið
hinar líkamlegu orsakir og við
höfum áður haldið.
Þetta er mikilvægt, bæði að
því er snertir að lækna og fyrir-
byggja ofdrykkju. Ef efna-
skipti líkamans ráða svona
miklu, verður ef til vill hægt
að hamla á móti áfenginu með
lyfjum á sama hátt og sykur-
sýki er haldið í skefjum með
insúlíni. Og með efnaskipta-
prófum verður ef til vill unnt
að segja fyrirfram hvernig á-
fengi verkar á hvern einstakl-
ing.
Ályktun lesanda: ég drekk
þá kannski alls ekki til þess að
flýja veruleikann, eða af því að
ég get ekki skrifað góða bók,
eða af dulvituðu hatri til föður
míns. Kannski er ástæðan sú,
að efnaskiptavélin í mér getur
ekki gengið fyrir áfengi.
k ★ k